Fjárfestingarsjóður hagnast vel á vínkaupum 4. ágúst 2010 09:32
Fjárfestingarsjóður á Spáni hefur hagnast vel á því að fjárfesta í víni. Sjóðurinn, sem bankinn Banca March stofnaði í desember s.l. hefur sýnt mun meiri hagnað en verðbréfa- og vogunarsjóðir það sem af er árinu.Fjallað er um sjóðinn, sem heitir March Gestion Vini Catena, í Guardian. Þar segir að sjóðurinn hafi náð 9% ávöxtun í ár. Á sama tíma hefur FTSE vísitalan lækkað um 3,7% og meðalhagnaður vogunarsjóða hefur numið 0,2% samkvæmt Hedge Fund Research.Sjóðurinn er ætlaður öllum þeim sem vinna við vínframleiðslu, frá bændum til smásöluverslana. Það hefur hjálpað til að verð á vínum hafa farið hækkandi í ár, einkum á þekktum árgangsvínum. Sem dæmi er tekið að sex lítra flaska af Chateau Pétrus frá árinu 1982 var nýlega seld fyrir 45 þúsund pund eða um 8,5 milljónir kr.Sem stendur er sjóðurinn 15 milljónir punda að stærð og hefur um 70% þeirrar upphæðar verið varið í fjárfestingar í Evrópu. Meðal þeirra má nefna kaup á hlutum í kampavínsframleiðandanum LVMH, áfengisframleiðandanum Diageo og víngerðinni Baron de Ley.Það fylgir sögunni að ef fjárfesting í víni misferst getur kaupandinn þó alltaf drukkið það sem hann keypti.
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira