Marklínu-dómararnir verða í Meistaradeildinni í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júlí 2010 17:45 Það verður nóg af dómurum í Meistaradeildinni í vetur. Mynd/AFP
Það verða fimm dómarar á vellinum í Meistaradeildinni á komandi tímabili en Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, tilkynnti þetta í dag. Það var gerð tilraun með tvo auka aðstoðardómara í Evrópudeildinni á síðasta tímabili og henni verður haldið áfram á komandi tímabili. Meðal þeirra keppna sem verða með fimm dómara á þessu tímabili eru auk Meistaradeildarinnar; Forsetabikarinn í Asíu, franski deildarbikarinn, Meistarakeppni UEFA og leikir í Brasilíu og Mexíkó. Alþjóðanefnd fótboltans, International Football Association Board (IFAB), tók málið fyrir á fundi sínum á dögunum og ákvað að haldið yrði áfram með þessa tilraun. Tilraunin verður síðan gerð upp á fundi nefndarinnar árið 2012. FIFA og IFAB eiga samt sem áður eftir að taka fyrir umræðuna um marklínu-tækni til þess að skera úr um hvort boltinn fari inn fyrir marklínuna eða ekki. Málið hefur verið áberandi í fjölmiðlum síðan að augljóst mark Frank Lampard á móti Þýskalandi á HM í Suður-Afríku var ekki dæmt gilt. Sérstök tækninefnd á vegum beggja mun taka málið fyrir í október en marklínu-aðstoðardómararnir munu þangað til vera í langbestu aðstöðu allra dómaranna á vellinum til þess að meta það hvort boltinn fer inn fyrir marklínuna eða ekki.
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Mest lesið Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Íslenski boltinn Ódýrast að æfa með Þór en dýrast hjá Fram Sport Tiger missir bílprófið í fimm ár Sport Romo játar sök og segist eiga við vanda að stríða Sport Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Enski boltinn Uppgjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Fótbolti Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Íslenski boltinn Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Enski boltinn KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Uppgjörið: FH-Apollon 0-1 | Evrópudraumur Hafnfirðinga heldur áfram Uppgjörið: Csíkszereda - Breiðablik 0-1 | Blikar áfram í Evrópu Draumurinn að rætast Liverpool fékk nýjan markvörð Allt teymi Heimis framlengir Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Vatnhamar til Vejle Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Félagsskiptaglugganum lokað: Stór nöfn færðu sig um set og ekki öllu lokið „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sjá meira
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Íslenski boltinn