Brjáluð vika Lindsay Lohan - sagan öll 22. maí 2010 14:00 Lindsay Lohan er stödd í Cannes en á að vera búin að mæta fyrir dómara í Los Angeles fyrir löngu.
Djamm í Cannes, handtökuskipun og nýr elskhugi. Nei, við erum ekki að skrifa um brjálaða viku bankamannsins Sigurðar Einarssonar heldur leikkonunnar Lindsay Lohan. Fregnir byrjuðu að berast af henni um síðustu helgi þar sem hún lenti í vandræðum á næturklúbbum í New York. Síðan færðist framhaldssagan yfir til Cannes þar sem hún var mætt í veislur í byrjun vikunnar. Lindsay átti að mæta fyrir dómara í byrjun vikunnar, en er enn þá stödd í Frakklandi. Af hverju? Lestu áfram. Lesbísk ástmærÞriðjudagur 18. maíLindsay Lohan var stödd á kvikmyndahátíðinni í Cannes þegar fréttir bárust af því að hún hefði tvo daga til að koma sér heim til Bandaríkjanna. Hún þurfti nefnilega að ljúka einhvers konar áfengisbindindisnámskeiði ella yrði hún send í steininn. Lohan sagðist ekki komast heim og kenndi eldgosinu í Eyjafjallajökli um, þrátt fyrir að stöðugar flugferðir hafi verið á milli Parísar og New York. Hún hefði aðeins þurft að taka lest frá Cannes til Parísar sem tekur um tvo og hálfan tíma.Seinna sama dag bárust fréttir af ástarsambandi Lindsay Lohan og ljósmyndara sem kallar sig Indrani, en það er nafn á stellingu í kama sutra-kynlífi - ótrúlegt en satt. Lindsay var í Cannes og gat hvorki játað né neita. Indrani sagði sjálf frá sambandinu í dagblaðinu New York Post. Partí í Cannes og vegabréfinu stolið! (?)Miðvikudagur 19. maí Einn dagur til stefnu og saksóknari virðist staðráðinn í að senda Lohan í fangelsi. Hún var hins vegar enn þá í Cannes og slúðurmiðlar voru duglegir við að birta myndir af henni í ýmsum partíum á hátíðinni. Henni virtist sem sagt standa á sama um lög og reglur í heimalandi sínu. Lögfræðingur Lohan segir í samtali við bandaríska fjölmiðla að vegabréfi hennar hafi verið stolið. Þá segir hann að hún sé að gera allt sem í hennar valdi stendur til að fá nýtt og koma sér aftur heim. Ákæruvaldið beið í Bandaríkjunum. Þarf að ganga með áfengisarmbandFimmtudagur 20. maí Lohan hefur ekki sótt um nýtt vegabréf samkvæmt upplýsingum frá sendiráði Bandaríkjanna í Frakklandi. Fréttamiðlar vestanhafs saka hana um að ljúga til að geta verið áfram í Frakklandi, enda birtast sífellt nýjar partímyndir af henni. Dina Lohan, móðir Lindsay, segir ekkert misjafnt vera í gangi - vegabréfið sé einfaldlega týnt og Lindsay föst í Frakklandi.Saksóknarinn í máli Lohan segir í viðtali við vefinn Radar Online að krafist verði þess að hún verði handtekin við komuna til landsins. Þá verður hún beðin um að sýna flugmiða sem sannar að hún hafi ætla að koma til landsins á mánudag, áður en vegabréfi hennar var stolið.Lögfræðingur Lohan nær ekki að sanna með fullnægjandi hætti að hún hafi ætlað að fara heim í byrjun vikunnar. Handtökuskipun er gefin út, Lohan er bannað að drekka áfengi og neyðist til að vera með armband sem mælir áfengismagn. Þá þarf hún að gangast undir lyfjapróf vikulega. Hún getur sloppið við gæsluvarðhald gegn 100.000 dollara tryggingu.Móðir Lohan segir dóttur sína komna með nýtt vegabréf. Sem er furðulegt þar sem enginn getur staðfest að hún hafi sótt um nýtt. Djamm er snilldFöstudagur 21. maíLohan sleppur með að borga 10.000 dollara tryggingu - aðeins 10 prósent af upprunalegri upphæð. Handtökuskipun er felld niður.Fréttir berast af Lohan á djamminu í Cannes. Djamm er snilld. Hún er enn þá í Frakklandi og enginn veit hvenær hún kemur aftur.Saksóknarinn í máli Lohan segir í viðtali við vefinn Radar Online að krafist verði þess að hún verði handtekin við komuna til landsins. Þá verður hún beðin um að sýna flugmiða sem sannar að hún hafi ætla að koma til landsins á mánudag, áður en vegabréfi hennar var stolið.
Lífið Menning Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira