Umfjöllun: ÍBV og Blikar sættust á jafnan hlut í Eyjum Valur Smári Heimisson skrifar 31. maí 2010 07:00 Tryggvi átti hluta í marki ÍBV í gær. Fréttablaðið/Anton
Askan úr Eyjafjallajökli gerði ekkert nema gott fyrir Hásteinsvöll sem skartaði sínu fegursta í fyrsta heimaleik ÍBV í sumar í gær. Liðið tók þá á móti Breiðabliki þar sem liðin skildu jöfn 1-1. Leikurinn fór rólega af stað en bæði lið þó að spila fallegan fótbolta, boltinn gekk vel á milli manna og áttu bæði lið ágætis kafla í fyrri hálfleik en gáfu fá færi á sér. Tryggvi Guðmundsson átti þó skot í slánna en staðan í hálfleik markalaus. Sá seinni var þó mun fjörugri. Blikar komust yfir eftir að James Hurst skallaði boltann út úr teignum eftir hornspyrnu, Haukur Baldvinsson tók boltann einn og óvaldaður utan teigsins og gerði engin mistök þegar hann smellti boltanum með þrumu skoti niðri í hægra hornið framhjá Alberti Sævarsyni markmanni ÍBV. Mikill hiti kom svo í leikinn eftir fyrsta markið, ekkert spjald hafði farið á loft fyrir markið en þá komu þrjú á fimm mínútna kafla. Eyjamenn ætluðu greinilega að svara strax með marki og voru mjög ofarlega á vellinum. Það opnaði vörn þeirra og Alfreð Finnbogason átti glæsilega sendingu inn fyrir vörn ÍBV á Guðmund Pétursson sem var svo með Hauk við hliðiná sér og voru þeir einir á móti Alberti Sævarssyni. Guðmundur reyndi að skjóta sjálfur en Albert gerði frábærlega með því að verja áður en Andri Ólafsson hreinsaði svo boltann af línunni. Blikar klaufar að klára ekki leikinn. Eyjamenn virtust fá byr undir báða vængi eftir þetta og jöfnuðu skömmu fyrir leikslok. Denis Sytnik fékk að leika sér aðeins með boltan fyrir utan teig Blikanna, hann átti skot sem endaði í slánni þaðan sem boltinn datt beint fyrir lappirnar á Tryggva Guðmundssyni sem var þá einn á móti Ingvari Þór. Tryggvi skaut og Ingvar varði en rak sig í boltann með hælnum og hann rann yfir marklínuna. Tryggvi sagði eftir leik að hann hafi átt markið sjálfur. Bæði lið virtust sátt með jafnteflið og niðurstaðan 1-1. Þjálfararnir voru sammála um að stig hefði verið fín úrslit. „Ég held að ég geti ekki annað en verið sáttur miðað við hvernig leikurinn þróaðist og mér finnst jafntefli vera nokkuð sanngjörn niðurstaða. Við sýndum karakter með því að koma til baka en við lögðum upp með að taka öll þrjú stigin í dag. En við vissum vel að Breiðablik er sennilega með heitasta liðið í dag og það yrði erfitt,“ sagði Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV. Kollegi hans Ólafur Kristjánsson tók í svipaðan streng. „Ég er nokkuð sáttur, við áttum fína spretti og mér fannst í raun bæði lið eiga bara ágætis leik. Ég veit samt ekki hvort ég sé eitthvað sáttari en Heimir en við áttum gott tækifæri til að loka leiknum þegar við vorum þarna 0 – 1 yfir þegar Guðmundur Péturs og Haukur Baldvins sleppa þarna einir í gegn en nýttum það ekki og mér fannst Eyjamennirnir komast í gang aftur eftir það. Það voru í raun ekki mikið af færum í leiknum og mikið jafnræði var á milli liðanna,“ sagði Ólafur. ÍBV - Breiðablik 1-1 1-0 Haukur Baldvinsson (64.) 1-1 Ingvar Kale - Sjálfsmark (80.) Áhorfendur: 893 Dómari: Kristinn Jakobsson 7 Skot (á mark): 18-8 (12-5) Varin skot: 5 – 7 Horn: 5-4 Aukaspyrnur fengnar: 11-12 Rangstöður: 3-2 ÍBV (4-5-1) Albert Sævarsson 7 James Hurst 7* Maður leiksins Eiður Aron Sigurbjörnsson 6 Rasmus Christiansen 6 Matt Garner 6 Tony Mawejje 6 Finnur Ólafsson 6 Andri Ólafsson6 Tryggvi Guðmundsson 7 Þórarinn Ingi Valdimarsson 7 Denis Sytnik 6 Breiðablik (4-3-3) Ingvar Kale 5 Elfar Freyr Helgason 6 Kári Ársælsson 6 Haukur Baldvinsson 7 Alfreð Finnbogason 6 Kristinn Steindórsson 6 Guðmundur Kristjánsson 6 Jökull Elísabetarson 6 Kristinn Jónsson 6 Arnór Sveinn Aðalsteinsson 6 Guðmundur Pétursson 5
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Trump styður við bakið á Tiger Golf Lét ekki viðbeinsbrot stoppa sig og fagnaði í fatla Fótbolti Glódís skallaði sig inn í lið umferðarinnar Fótbolti Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og úrslitakeppnir í körfuboltanum Sport Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Enski boltinn Tiger var hissa á handtökunni og hringdi í Trump forseta Golf Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna Íslenski boltinn Í fyrsta sinn á þessari öld sem enginn fellur á lyfjaprófi Sport Sindri sópaði Snæfelli en Fjölnismenn héldu sér á lífi gegn KV Körfubolti Fleiri fréttir Ægir Jarl mættur til Fram Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Meistarakeppni kvenna í fótbolta aflýst vegna veðurs Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Breiðablik - FH | Bikar í boði í meistarakeppninni „Ég er spenntur fyrir Þórsurum“ Besta-spáin 2026: Mæta með læti Kane ver mark Blika Í toppstandi og stefnir á alla titla Kom að luktum dyrum hjá Óskari: „Hef ekki tíma í þetta“ „Á mjög erfitt með að sjá þetta vera jafn gott og síðasta sumar“ Segja hann koma úr efstu deild í Litháen en hann féll úr B-deildinni Besta-spáin 2026: Ætla blása hrakspárnar aftur á haf út Sérfræðingarnir svara: Hver hefur mest að sanna í sumar? Hollenskur varnarmaður gengur í raðir Vals „Vil sjá Keflvíkinga koma sér á þann stað sem þeir voru á“ Besta-spáin 2026: Enn á skilorði Davíð Smári hóf sína eigin bikarvörn á sigri Upplifunar- og gæðastjórinn segir mikilvægt að rýna í xF Sérfræðingarnir svara: Spenntastir fyrir nýju Skagamönnunum og strákunum fyrir norðan Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun „Þetta er leikur um bikar og við stefnum á þá alla“ Víkingur - Vestri 4-0 | Víkingur er meistari meistaranna Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 4-1 | Blikar léku við hvurn sinn fingur í úrslitaleiknum Sjá meira