Viðar Örn: Fyrri hálfleikur var skelfing en sá seinni algjör draumur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. ágúst 2010 22:15 Viðar Örn Kjartansson eftir leikinn í kvöld. Mynd/ÓskarÓ „
Þetta var yndislegt og við hefðum ekki getað gert þetta betur. Fyrri hálfleikur var skelfing en seinni hálfleikur var algjör draumur," sagði varamaðurinn Viðar Örn Kjartansson. Hann kom inn á í stöðunni 1-2 fyrir Keflavík þegar 16 mínútur voru eftir, fiskaði víti sem gaf jöfnunarmarkið og skoraði síðan sigurmarkið sjálfur. „Ég vonaðist til að fá hálftíma en fékk bara rúmt korter. Maður verður að nýta tækifærið þegar maður fær það. Það er bara svoleiðis," sagði Viðar Örn kátur sem skoraði sigurmarkið eftir frábæra stungusendingu frá Viktori Unnari Illugasyni. „Ég var kominn einn á móti markverði og þá er bara aðeins að horfa á markið og sjá hvar er hægt að setja hann. Ég fann rétta staðinn," sagði Viðar Örn. „Við þurfum að vinna nokkra leiki í viðbót til þess að bjarga okkur. Við vitum að það er nóg af úrslitaleikjum framundan en við tökum bara einn leik í einu og nú er bara að stefna á sigur á móti Fram á mánudaginn," sagði Viðar. „Ég vorkenndi stuðningsmönnunum eftir annað markið en við svöruðu algjörlega hálfleiksræðunni hjá Gumma. Þetta gat ekki verið betra og ég gat ekki byrjað þetta betur eftir meiðslin. Ég fæ vonandi að spila eitthvað meira á næstunni því þetta er bara byrjunin af því sem koma skal," sagði Viðar að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Íslenski boltinn Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Íslenski boltinn Vatnsbyssum beint að Elvari eftir 28 stiga sýningu Körfubolti Uppgjörið: KR - Stjarnan 91-82 | KR stóðst spennuna og allt jafnt Körfubolti Allir verði að sjá æfingar Thelmu Sport Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 84-86 | Allt jafnt eftir ótrúlega dramatík Körfubolti Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn Íslenski boltinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ Íslenski boltinn Nokkrir tæpir í Grindavík sem „tala skít“ Körfubolti Þórir: Við lærðum bara af fyrsta leiknum Körfubolti Fleiri fréttir KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Þroskamerki fyrir KR: „Það sem hefur vantað er andlegur styrkur „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Varla spilað fótbolta í fjögur ár en skaut Gróttu áfram Damir skaut Grindvíkinga áfram í vítakeppni Viktor í stuði á Skaganum og dramatík í Egilshöll Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll „Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Ægir Jarl mættur til Fram Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Sjá meira