Brynvörðum peningaflutningabíl breytt í lúxuslimmósínu 3. febrúar 2010 10:58
Neyðin kennir naktri konu að spinna segir máltækið og það á vel við um eigendur fyrirtækis í Dallas Texas sem sérhæfir sig í flutningum á peningum milli staða í brynvörðum bílum. Viðskiptin hafa dalað mikið í kreppunni og því greip fyrirtækið til þess ráð að breyta bílum sínum í lúxuslimmósínur fyrir hina frægu og ríku.Samkvæmt frétt um málið á börsen.dk heitir fyrirtækið núna The Armored Limousine Service og viðskiptin blómstra. Þessir brynvörðu bílar eru innréttaðir eins og myndband frá MTV stöðinni með leðuráklæðum og gullhandföngum ásamt blikkljósum og stillanlegri súlu fyrir nektardansmeyjar.Einnig fylgir með hinn sjálfsagði kampavínsbar, nettenginar og tölvuspilaskjáir. Þar að auki eru þessar 100% skotheldu limmósínur með innbyggða byssurekka og á hliðum þeirra eru sérstök göt til að skjóta gegnum. Það er öruggt að viðskiptavinir fyrirtækisins komast óskaddaðir á rauða dregilinn.
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira