Kannski finnum við nýjan Kalla Bjarna 9. janúar 2009 13:23 Jóhannes Ásbjörnsson og Jón Ólafsson.
Áheyrnarprufur fyrir Idol Stjörnuleit fara fram á morgun á Hótel Hilton Reykjavík Nordica. Vísir hafði samband við annan kynninn Jóhannes Ásbjörnsson, betur þekktan sem Jóa, og dómarann Jón Ólafsson. „Ég er rígspenntur alveg. Er að búa mig undir hópfaðmlög, gleði, svita og tár," svarar Jói aðspurður hvernig keppnin leggst í hann en rúmlega 2000 manns hafa nú þegar skráð sig í keppnina. Kalli Bjarni og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. „Ég held að morgundagurinn verði erfiðasti dagurinn, andlega sem líkamlega fyrir okkur dómnefndarfólk," segir Jón. „Við þurfum að hlusta á yfir eitt hundrað keppendur á einum og sama sólarhringnum. Eins gott að fara snemma í bólið í kvöld. Sjálfur auglýsi ég eftir amfetamínplástrum til að líma á mig svo ég verði með fullt energí allan tímann. Annars hlakka ég barasta til og vona við reynumst réttsýn og sanngjörn í djobbinu," segir Jón. Hildur Vala Einarsdóttir kona Jóns Ólafssonar sigraði Idolið árið 2005. Góð ráð til handa keppendum? „Keppendur ættu að sleppa því að fara út á lífið í kvöld. Þeir sem reykja ættu ekki að hætta því fyrr en eftir prufurnar því það tekur tíma fyrir systemið að hreinsa sig," segir Jón. „Enginn ætti að mæta ölvaður í prufurnar eða undir áhrifum fíkniefna því ég er með þvagprufugræjur frá Frjálsíþróttasambandinu og mun vera með slembiúrtak á fjögurra tíma fresti til að kanna hvort einhver þátttakandinn sé ólöglegur," segir Jón og heldur áfram: „Svo er alltaf gott að hlusta á einn til tvo Nýdönsk diska með reglulegu millibili. Bara fyrir andann sko." Sýningar á Idol Stjörnuleit hefjast föstudaginn 13. febrúar á Stöð 2. Í dómnefnd sitja Jón Ólafsson, Selma Björnsdóttir og Björn Jörundur Friðbjörnsson. „Keppendur þurfa að spyrja sig: „Hvað er það sem ég hef sem hinir 1999 hafa ekki?" Passa svo að hafa það meðferðis," segir Jói. Eruð þið spenntir? „Ég er forvitinn og spenntur fyrir morgundeginum. Kannski finnum við nýjan Geirmund, eða nýjan Kalla Bjarna? Þetta verður gríðargaman," svarar Jón og Jói bætir við: „Tvö þúsund skráningar segja allt sem segja þarf. Væntingarnar eru eftir því."
Idol Mest lesið Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Lífið Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Staðfesta sambandsslitin Lífið Umboðsmaður Jenner lést af slysförum Lífið Mun aldrei líta á ástina sem sjálfsagða Makamál Rósa og Hersir orðin foreldrar Lífið Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lífið Fleiri fréttir Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Michael Madsen er látinn Kvenorkan tók yfir á Garðatorgi Björt og Fannar selja einbýlishús fyrir 90 milljónir Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lykla-Pétur fauk á haf út Sigraðist á krabba og komst að óléttu samdægurs Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? Landsliðsmaður gifti sig í Vík í Mýrdal Eitt glæsilegasta hrossabú landsins falt fyrir tæpan einn og hálfan milljarð Elta drauminn um hægara líf eftir fjögur ár á Íslandi Sólveig og Halldór gáfu dótturinni nafn Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Fyrst skíði og nú golf Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Árin hjá Spotify ævintýri líkust Sjá meira