Howard og Bryant þurfa að halda sér á mottunni 25. maí 2009 17:30 Howard og Bryant voru samherjar í bandaríska landsliðinu á ÓL í sumar og voru valdir í fyrsta úrvalslið NBA deildarinnar í vetur NordicPhotos/GettyImages
Stórstjörnurnar Dwight Howard hjá Orlando Magic og Kobe Bryant hjá LA Lakers þurfa að gæta tungu sinnar það sem eftir lifir af úrslitakeppninni í NBA. Þessir sterku leikmenn eru nefnilega efstir og jafnir á lista yfir þá sem fengið hafa flestar tæknivillur í úrslitakeppninni til þessa - fimm tæknivillur hvor. Ef leikmaður fær sjö tæknivillur í úrslitakeppninni er hann sjálfkrafa dæmdur í eins leiks bann og það er nokkuð sem lið þeirra félaga mega illa við þegar komið er fram í undanúrslitin. Howard fékk síðast tæknivillu í leik Orlando og Cleveland í nótt þar sem hann gat ekki stillt sig um að segja Joey Crawford dómara skoðun sína á störfum hans. "Ég sagði ekkert við Joey Crawford," mótmælti Howard á blaðamannafundi eftir leikinn. Menn hafa farið flatt á því að deila við þann tiltekna dómara, sem leiðist ekki sviðsljósið og hikar ekki við að henda mönnum í bað ef honum mislíkar framkoma þeirra. Kobe Bryant hefur reyndar fengið sex tæknivillur í úrslitakeppninni, en ein þeirra var dregin til baka. Það var eftir viðskipti hans við Ron Artest hjá Houston í annari umferðinni. Bryant verður í eldlínunni í nótt þegar lið hans sækir Denver heim í fjórðu viðureign liðanna í úrslitum Austurdeildar. Leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport klukkan eitt eftir miðnætti. Lakers hefur yfir 2-1 í einvíginu.
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira