Toyota spáir miklu tapi 6. febrúar 2009 09:22
Japanski bílaframleiðandinn Toyota gerir ráð fyrir að tapa 450 milljörðum jena, jafnvirði rúmlega 560 milljarða króna, vegna samdráttar á bílamarkaði á síðasta ári. Þetta er þrisvar sinnum meira en fyrri spá bílaframleiðandans hljóðaði upp á. Síðasta spá var gefin út í enda síðasta árs. Þetta verður jafnframt fyrsta tap bílaframleiðandans í 70 ár. Tvennt kemur til, að sögn breska ríkisútvarpsins. Bæði hefur efnahagskreppan valdið því að færri skipta gamla bílnum út fyrir nýjan auk þess sem styrking jensins gagnvart helstu viðskiptamyntum hefur dregið úr útflutningi.Miklar hagræðingaraðgerðir eru boðaðar í Toyota-veldinu, bæði hafa vaktir verið skornar niður við framleiðslulínur og starfsdegi breytt á fyrsta ársfjórðungi. Þetta jafngildir því að öllum verksmiðjum Toyota í Japan verði lokað í hálfan mánuð samtals á tímabilinu janúar til mars.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira