Hoffenham hélt toppsætinu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. janúar 2009 17:42 Sigrinum fagnað eftir leik í dag. Nordic Photos / Bongarts
Þýska úrvalsdeildin í knattspyrnu er komin af stað á nýjan leik eftir vetrarhlé og heldur spútniklið Hoffenheim uppteknum hætti á nýju ári. Liðið vann 2-0 sigur á Energy Cottbus á hinum glænýja Rhein-Neckar-leikvangi sem liðið lék á í fyrsta sinn í dag. Hann tekur rúm 30 þúsund manns í sæti. Það voru þeir Demba Ba og Boubacar Sonogo sem skoruðu mörk Hoffenheim í dag en liðið þótti leika vel þrátt fyrir fjarveru markaskorarans Vedad Ibisevic sem er frá vegna krossbandsslita það sem eftir lifir leiktíðarinnar. Hann afrekaði þó að skora átján mörk í einungis sautján leikjum á tímabilinu. Hoffenheim er með tveggja stiga forystu á Herthu Berlin og Hamburger SV sem eru bæði með 36 stig. Hertha vann 2-1 sigur á Frankfurt en í gær vann Hamburg góðan sigur á Bayern München, 1-0, með marki Mladen Petric. Þetta er aðeins í annað skiptið sem Bayern er ekki í hópi þriggja efstu liða deildarinnar á þessum tímapunkti tímabilsins. Úrslit dagsins: Dortmund - Leverkusen 1-1 Hannover - Schalke 1-0 Hertha - Frankfurd 2-1 Hoffenheim - Cottbus 2-0 Köln - Wolfsburg 1-1 Stuttgart - Mönchengladbach 2-0
Þýski boltinn Mest lesið Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Fótbolti Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock Handbolti Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari Fótbolti Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Handbolti Willum nýr forseti ÍSÍ með algjörum yfirburðum Sport „Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“ Handbolti „Ég byrjaði bara að gráta, ég réði ekki við neitt“ Handbolti Fleiri fréttir Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Stórsigur Stólanna í Víkinni Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Sjálfum okkur verstar” Glæsimark frá Úlfu tryggði Stjörnunni stigin þrjú Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Dortmund náði sætinu á síðustu stundu Uppgjörið: Fram - Þór/KA 1-3 | Tvö mörk frá Söndru Maríu í sigri Þór/KA Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni „Verður stærsti dagur ævi minnar“ „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Aron á að hjálpa leikmönnum að hugsa ekki um ströndina Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Svona var blaðamannafundur Arnars Aron Einar með en enginn Gylfi Þróttur mætir bikarmeisturunum Sjá meira