Ben Bernanke seðlabankastjóri Bandaríkjanna svarar þingnefnd: Fjárlagahalli ógnar stöðugleika 5. júní 2009 04:00 Ben Bernanke Seðlabankastjóri Bandaríkjanna segir ekki útilokað að lánakjör ríkisins versni til muna vegna hallareksturs.Fréttablaðið/AFP
Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, varar við því að mikill fjárlagahalli í Bandaríkjunum geti ógnað stöðugleika í bandarísku efnahagslífi og leitt til þess að lánakjör hins opinbera versni til muna. Seðlabankastjórinn, sem sat fyrir svörum hjá fjárlaganefnd bandaríska þingsins í vikunni, sagði uppkaup ríkisins á slæmum eignum banka og fjármálafyrirtækja eiga þar hlut að máli. Seðlabankinn geti ekki fjármagnað hítina til lengri tíma. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur sagt aðgerðina, sem Englandsbanki hefur sömuleiðis tekið upp, misráðna og bjóða hættunni heim. Bloomberg-fréttastofan segir gert ráð fyrir því að halli á fjárlögum bandaríska ríkisins verði fjórfalt meiri á þessu ári en í fyrra. Munar þar mestu um aðgerðir stjórnvalda til að bæta eiginfjárgrunn stærstu banka Bandaríkjanna og koma í veg fyrir að þeir fari á hliðina. Barack Obama, forseti landsins, hefur lagt upp með að skera fjárlagahallann niður um helming á kjörtímabili sínu, að sögn Bloomberg. - jab
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira