Garnett gæti misst af úrslitakeppninni 16. apríl 2009 16:43 Nordic Photos/Getty Images
Framherjinn Kevin Garnett hjá meisturum Boston Celtics verður ekki klár í slaginn með liði sínu þegar það hefur leik gegn Chicago Bulls í úrslitakeppninni á laugardagskvöldið. "Hann verður ekki tilbúinn. Ég horfði á hann á æfingu og það er ekki möguleiki að hann verði klár í úrslitakeppnina. Við verðum að halda áfram án hans," sagði Doc Rivers, þjálfari Boston í útvarpsviðtali. Fjölmiðlar vestra hafa reynt að fá frekari skýringar á yfirlýsingum þjálfarans án árangurs og nú eru menn farnir að óttast það versta. Garnett hefur verið andlegur leiðtogi Boston síðan hann gekk í raðir liðsins fyrir síðustu leiktíð. Hann var kjörinn varnarmaður ársins á síðustu leiktíð og fór fyrir liðinu þegar það vann 17. meistaratitilinn í sögu félagsins. Garnett meiddist á hné í febrúar, missti úr 13 leiki, sneri aftur og spilaði fjóra leiki, en missti svo af restinni af tímabilinu. "Kevin var reiður þegar hann heyrði þessi tíðindi. Reiður við mig, reiður við allra. Svo gerði hann sér grein fyrir þessu. Hann er svo mikill keppnismaður og það er ástæðan fyrir því að við fengum hann hingað," sagði Rivers. Boston hefur unnið 18 leiki og tapað 7 þegar Garnett hefur ekki verið með liðinu, en vörn Boston er ekki sú sama þegar Garnett er ekki með. Þessi tíðindi eru reiðarslag fyrir Boston-liðið og gætu átt eftir að breyta miklu þegar fram líður í úrslitakeppninni.
NBA Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira