Hagfræðideild Landsbankans fjallar um málið í Hagsjá sinni. Þar segir að frá því Lehman Brothers fjárfestingarbankinn varð gjaldþrota í september á síðasta ári hefur Seðlabanki Evrópu veitt fjármálastofnunum lán til 12 mánaða í senn með því augnamiði að tryggja þeim lengri tíma skammtímafjármögnun. Þegar lausafjárkreppan fór að láta á sér kræla í ágúst 2007 sá ECB fjármálakerfinu fyrir um 450 milljarða evra fjármögnun en um þessar mundir er fjárhæðin um 670 milljarðar evra.
Skammtímalánin eru boðin upp reglulega og vextir á þeim hafa verið þeir sömu og stýrivextir seðlabankans. Næstkomandi uppboð fer fram 15. desember en það verður hið síðasta af þessu tagi. Þar að auki munu vextir ráðast af þróun stýrivaxta seðlabankans frekar en að vera fastir í 1% eins og hingað til. Sömuleiðis var tilkynnt að samsvarandi uppboðum á lánum til 6 mánaða verði hætt í lok fyrsta fjórðungs næsta árs.
ECB á von á því að ástand fjármálamarkaða hafi skánað það mikið að ekki sé þörf á sömu úrræðum og fyrir rúmu ári síðan. Einnig er dregið úr aðgerðum til þess að koma í veg fyrir að bankar verði háðir neyðarfjármögnun sem þessari til lengri tíma.
Þrátt fyrir að hætt verði að veita lengri tíma skammtímalán er haft eftir Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóra Evrópu, að fjármálafyrirtækjum verði eftir sem áður tryggt aðgengi að nægu lausafé í marga mánuði.