Paradísareyja Ingmar Bergman seld á uppboði 22. maí 2009 13:30
Eyjan Farö í sænska skerjagarðinum verður bráðlega sett á uppboð en eyjan var fyrrum í eigu sænska leikstjórans Ingmar Bergman. Eyjan tengist mjög verkum Bergman, þar var m.a. myndin En Passion tekin upp árið 1969 auk þess að leikstjórinn skrifaði mörg af handritum sínum á eyjunni. Að sögn fréttastofunnar AFP er mikill áhugi fyrir eyjunni innan sem utan Svíþjóðar og er áætlað verð fyrir hana komið í 4 milljónir evra eða hátt í 800 milljónir kr. Með í kaupunum fylgja fjögur hús á eyjunni en stærsta húsið hannaði Bergman sjálfur í samvinnu við arkitektinn Kjell Abramson. Meðal húsanna er uppgert bóndabýli frá árinu 1854 sem Bergman innréttaði sem sinn eigin kvikmyndasal. Nýlega vildi sænskur sjóður kaupa eyjuna og gera hana að safni en sjóðurinn varð að gefast upp þar sem hann réð ekki við ásett verð. Sjálfur lést Bergman árið 2007 en hann náði að gera 40 kvikmyndir á ferli sem spannaði meir en hálfa öld.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira