Áfram barist við endurheimtur á fé úr íslenska bankahruninu 27. júní 2009 09:15
Góðgerðarsamtökin Highland Hospice, sem reka m.a. sjúkrahótel í Inverness í Skotlandi hafa ekki gefist upp við að endurheimta fé það sem samtökin töpuðu á hruni íslensku bankanna í haust. Eins og kunnugt er af fréttum hér á síðunni ákváðu bresk stjórnvöld nýlega að félögum eins og Highland Hospice og fleiri samtökunum yrði ekki bættur skaðinn af inneignatapi sínu hjá íslensku bönkunum í Bretlandi. Einstaklingar hafa hinsvegar fengið skaða sinn bættan. Highland Hospice tapaði 700.000 pundum, eða tæplega 150 milljónum kr., sem samtökin áttu inni hjá Singer & Friedlander banka Kaupþings í Bretlandi. Í fréttum um málið á vefsíðu The Press and Journal í Aberdeen segir að Lord John Thurso, þingmaður Frjálslyndra á breska þinginu og meðlimur í fjárlaganefnd þingsins hafi nýlega heimsótt eina af starfsstöðvum Highland Hospice. Þar lýsti hann yfir áframhaldandi stuðningi sínum við samtökin í þessu máli. Lord Thurso hvatti aðra í nefndinni til þess að samþykkja að stjórnvöld ættu að bæta skaða samtaka á borð við Highland Hospice af íslensku bönkunum. Hann segist vera vonsvikin yfir því að stjórnvöld fóru ekki eftir ábendingum nefndarinnar um að góðgerðarsamtök ættu að sitja við sama borð og einstaklingar hvað endurgreiðslur varðar. "Þetta var fé sem almenningur hafði safnað og gefið þessum samtökum og bankamenn töpuðu. Kostnaðurinn við að bæta skaðan er ekki mikill og málefnið kallar á bætur. Nefndin hefur skrifað fjármálaráðherranum bréf þar sem hann er hvattur til að endurskoða ákvörðun sína," segir Lord Thurso. Maria McGill forstöðukona Highland Hospice segir að ákvörðun stjórnvalda hafi verið áfall fyrir samtökin og mikil vonbrigði. Hún leggur hinsvegar áherslu á að tapið muni ekki draga úr þjónustu samtakanna við skjólstæðinga sína. Hvað baráttuna fyrir féinu varðar segir McGill að þau muni áfram reyna að beita þingmenn þrýstingi til að gera eitthvað í málinu. Þá séu þau einnig meðlimir Save our Savings sem eru samtök innistæðueigenda hjá Singer & Fridelander og berjast fyrir því að fá fé sitt úr bankanum til baka.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira