Samkomulag Sviss og BNA: Slakað á bankaleynd Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 20. júní 2009 16:45 UBS í Sviss
Bandaríkin og Sviss hafa nú gert með sér tvíhliða samkomulag um upplýsingagjöf banka vegna grunaðra skattsvikara. Samkomulagið verður formlega undirritað á næstu mánuðum. Sviss heldur þar með áfram að slaka á bankaleynd í landinu.Í mars tilkynntu Svissnesk yfirvöld að þau færu framvegis eftir alþjóðlegum stöðlum um upplýsingagjöf í bankakerfinu. Slíkir staðlar eru ákveðnir af efnahags- og framfarastofnuninni OECD. Sviss er sem stendur á svokölluðum gráum lista stofnunarinnar yfir lönd sem þurfa að auka upplýsingagjöf sína vegna hugsanlegra skattsvikara.Svisslendingar vonast til að komast af þessum athugunarlista yfir skattaskjól með samvinnuþýðninni. Þeir hafa þó lagt áherslu á að þeir muni aðeins aflétta bankaleynd í einstökum tilfellum þar sem nægjanlegur rökstuðningur liggur að baki.Svissneski bankinn UBS hefur átt í deilum við bandarísk yfirvöld undanfarna mánuði, en þau hafa krafist upplýsinga um þá viðskiptavini bankans sem grunaðir eru um skattsvik. UBS létu að lokum undan í febrúar og gáfu upp gögn um 300 bandaríska reikningshafa bankans. Síðan þá hafa bandarísk yfirvöld krafist upplýsinga um 50.000 viðskiptavini bankans til viðbótar.Þetta kom fram á viðskiptafréttavef BBC.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira