James tryggði Cleveland sigur með flautukörfu 24. janúar 2009 12:57 LeBron James fagnar sigurkörfunni í nótt AP
Fjöldi leikja var á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. LeBron James var hetja Cleveland þegar hann skoraði sigurkröfu liðsins um leið og lokaflautið gall í 106-105 útisigri á Golden State. James skoraði 32 stig fyrir Cleveland í leiknum, hirti 9 fráköst og gaf 8 stoðsendingar en liðið hefur unnið 33 leiki og tapað aðeins átta. Stephen Jackson skoraði 24 stig fyrir Golden State í leiknum. Dallas burstaði Detroit á útivelli 112-91 þar sem Dirk Nowitzki skoraði 26 stig fyrir Dallas en Rip Hamilton 17 fyrir Detroit. Óvænt úrslit urðu í Charlotte þar sem heimamenn tóku Phoenix í kennslustund 98-76. Shaquille O´Neal var eini maðurinn í liði Phoenix sem var með meðvitund og skoraði 20 stig. Gerald Wallace skoraði 28 stig og hitti 11 af 13 skotum sínum hjá Charlotte og fyrrum Phoenix maðurinn Boris Diaw var með 26 stig og 11 fráköst. Indiana lagði Houston á heimavelli 107-102 þar sem Houston missti enn einn manninn í meiðsli. Yao Ming þurfti að fara af velli með aumt hné og bættist í hóp Tracy McGrady og Ron Artest á meiðslalistanum. New Orleans tapaði nokkuð óvænt fyrir Minnesota 116-108, San Antonio marði New Jersey 94-91 og Toronto endurheimti Jose Calderon úr meiðslum og burstaði Chicago á útivelli 114-94. Úrslitin í nótt: Indiana Pacers 107-102 Houston Rockets ________________________________________ Charlotte Bobcats 98-76 Phoenix Suns ________________________________________ LA Clippers 107-104 Oklahoma City ________________________________________ Minnesota Timberwolves 116-108 New Orleans Hornets ________________________________________ Atlanta Hawks 117-87 Milwaukee Bucks ________________________________________ San Antonio Spurs 94-91 New Jersey Nets ________________________________________ Chicago Bulls 94-114 Toronto Raptors ________________________________________ New York Knicks 108-88 Memphis Grizzlies ________________________________________ Detroit Pistons 91-112 Dallas Mavericks ________________________________________ Golden State Warriors 105-106 Cleveland Cavaliers
NBA Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Fleiri fréttir Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Uppgjörið: Ármann - Valur 78-89 | Valskonur aftur á sigurbraut Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Tryggvi Snær og félagar aftur á sigurbraut Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Sjá meira