Smásala í Bandaríkjunum dróst saman í júní Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. júlí 2009 23:55 Smásala dróst saman í Bandaríkjunum í júní.
Smásala í Bandaríkjunum dróst töluvert saman í júní. Reuters fréttastofan segir að mánuðurinn hafi verið sérstaklega erfiður verslunum sem selja sumarvörur því fyrstu þrjár vikurnar í júní hafi verið kaldari og blautari en venjulegt er. Reiknað er með að smásala hafi fallið um 4,8%, en sölutölur Wall-Mart verslananna eru ekki með í þeim útreikningum. „Neytendur horfast enn í augu við of miklar hindranir," sagði Patricia Edwards, hjá Storehouse Partners, sem sér um greiningar á smásölumarkaðnum. Hún segir að það skýrist af miklu atvinnuleysi og litlu lausafjármagni í umferð. Smásala jókst hins vegar lítillega eða um 0,5 prósent í maí miðað við 1,1 prósenta lækkun í aprílmánuði og þótti það þá benda til þess að efnahagssamdrátturinn í landinu væri á undanhaldi.
Mest lesið Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Viðskipti innlent Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Viðskipti erlent Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Viðskipti erlent Spá hressilegri vaxtalækkun Viðskipti innlent Megi troða „singles day“ upp í greiðslugáttirnar á sér Neytendur Falskir afslættir og þrýstingur við sölu á Temu Neytendur Hagnaður Sýnar dróst verulega saman milli ára Viðskipti innlent „Þetta verður bara heiðarlegur bisness, ég nenni engu kjaftæði“ Viðskipti innlent Sýkna í vaxtamálinu: „Þetta eru gífurleg vonbrigði“ Neytendur Stærðin skiptir ekki máli Atvinnulíf Fleiri fréttir Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira