Fram nældi í stig gegn toppliði Hauka Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. janúar 2009 18:02 Stella Sigurðardóttir átti góðan leik fyrir Fram í dag.
Þrír leikir fóru fram í N1-deild kvenna í dag þar sem hæst bar jafntefli Fram og toppliðs Hauka í Safamýrinni. Haukar hafa nú eins stigs forystu á Stjörnuna sem vann sigur á FH í dag. Leik Fram og Hauka lauk með 30-30 jafntefli eftir að Haukar voru með tveggja marka forystu í hálfleik, 14-12. Haukar komust mest sex mörkum yfir í fyrri hálfleik en Framarar bitu frá sér í þeim síðari. Stella Sigurðardóttir átti stórleik og skoraði tíu mörk fyrir Fram en þær Karen Knútsdóttir og Sara Sigurðardóttir komu næstar með fjögur mörk hvor. Hjá FH var Hanna G. Stefánsdóttir markahæst með sjö mörk. Erna Þráinsdóttir og Ramune Pekarskyte skoruðu sex og Nína Kristín Björnsdóttir fimm. Stjarnan vann sigur á FH á útivelli, 24-20, eftir að staðan í hálfleik var 11-8. Sólveig Lára Kjærnested skoraði sjö mörk fyrir Stjörnuna, Alina Petrache fimm og Þorgerður Anna Atladóttir fjögur. Hjá FH var Ragnhildur Guðmundsdóttir markahæst með átta mörk og Gunnur Sveinsdóttir kom næst með fimm. Að síðustu gerðu Fylkir og HK jafntefli, 24-24, eftir að Fylkismenn voru með eins marks forystu í hálfleik, 11-10. Sunna Jónsdóttir skoraði níu mörk fyrir Fylki og Rebekka Rut Skúladóttir sex. Fyrir HK skoraði Pavla Plaminkova ellefu mörk og Brynja Magnúsdóttir fimm. Fram er nú með ellefu stig í fjórða sæti en FH er í því fimmta með tíu. HK kemur næst með níu stig en Fylkir er enn á botninum en nú með þrjú stig.
Olís-deild kvenna Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Fótbolti Fleiri fréttir Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ Sjá meira