Körfubolti

Ísland vann 54 stiga sigur á San Marino

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Páll Axel skoraði mest í dag.
Páll Axel skoraði mest í dag. Fréttablaðið/Vilhelm
Ísland rótburstaði San Marino 93-39 á Smáþjóðaleikunum á Kýpur í dag. Ísland vann 1. leikhluta 24-14 og þann næsta 26-4. Sigurinn var aldrei í hættu.

Páll Axel Vilbergsson var stigahæstur í íslenska liðinu með fimmtán stig, Sigurður Þorsteinsson skoraði 14, Logi Gunnarsson 13, Hörður Axel Vilhjálmsson 11 og Fannar Helgason 10.

Ísland vann Möltu í fyrsta leiknum 95-53, tapaði svo stórt fyrir Kýpur 87-54, vann Andorra 82-77 og mætir svo Lúxembúrg í lokaleiknum á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×