Kosið verður um uppgjörið hjá Kaupþingi á Mön 19. maí 2009 14:29
Eyjaskeggjar á Mön sem áttu innistæður hjá útibúi Singer & Friedlander banka Kaupþings á eyjunni munu á næstunni kjósa um hvort þeir gangi að samkomulagi stjórnvalda á Mön um uppgjör á kröfum þeirra. Samkvæmt samkomulagi stjórnvalda og núverandi stjórnar útibúsins munu þessir íbúar á Mön, yfir 2.000 talsins, fá 70% af kröfum sínum greiddar á næstu tveimur árum. Í frétt um málið á BBC segir að ef innistæðueigendur samþykki þennan samning í sérstökum kosningum mun dómstóll á eyjunni virkja samkomulagið. Fari svo að samkomulagið verði fellt í þessum kosningum verður útibúinu skipt upp sem þrotabúi. Talið er að mjótt verði á mununum í þessum kosningum að því er segir í frétt BBC. Allan Bell fjármálaráðherra Manar segir að samkomulagið sé ekki fullkomið en að stjórnvöld telji að innistæðueigendurnir muni fá meira endurgreitt af innistæðum sínum með því heldur en þeir gætu fengið úr þrotabúi Singer & Friedlander. Kröfuhópar innistæðueigenda (KSFIOM) hafa sagt að þeir telji að gera eigi útibúið upp sem þrotabú því með þeim hætti fengju þeir innistæður sínar greiddar strax úr tryggingarsjóði innistæðueigenda á Mön, það er upp að 50.000 punda hámarki sem er sama upphæð og tryggingarsjóður innistæðueigenda á Bretlandseyjum tryggir fyrir. Síðar gætu þeir þar að auki fengið væntanlega eitthvað einnig úr sjálfu þrotabúinu.
Mest lesið Framkvæmdastjóri Olís: „Ekki hleypa henni að græjunum“ Atvinnulíf Ekkert tillit tekið til aðstæðna og ljóst að vöruúrval minnki Viðskipti innlent Brutu lög við söluna á Íslandsbanka og greiða yfir 60 milljónir í sektir Viðskipti innlent Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Viðskipti erlent Pakkarnir séu langt frá því að vera sambærilegir Viðskipti innlent Ellefu prósent þjóðarinnar eiga ísvél Neytendur Síminn má dreifa efni Sýnar Viðskipti innlent Segir búið að „dauðadæma Vefjuna“ vegna ummæla Reynis Viðskipti innlent Húrra opnar þriðju verslunina á höfuðborgarsvæðinu Viðskipti innlent Segir félaginu skylt að skipta sér af „sorgarvegferð“ Play Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Frakkar þurfi mögulega að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Risinn sem var of stór til að falla er fallinn Facebook gagnrýnt fyrir að leyfa gervigreind að reyna við börn Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Sjá meira