Skemmtilegur leikur á Sunnubrautinni á morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. apríl 2009 14:30 Keflvíkingurinn Jón Norðdal Hafsteinsson. Mynd/Anton
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur heldur lokahóf sitt í KK-salnum á morgun og eru fyrrum formenn, Íslandsmeistarar kvenna 1988 og Íslandsmeistarar karla frá 1989 sérstakir heiðursgestir á hófinu. Hátíðin hefst fyrr um daginn þegar Keflvíkingar hittast á Sunnubrautinni þar sem fram fer skemmtilegur leikur á milli meistaraliðs Keflavíkur frá 1989 og núverandi leikmanna Keflavíkurliðsins. Leikurinn hefst klukkan 17.30 og heimasíða Keflavíkur lofar því að allar stórstjörnur liðanna muni mæta til leiks. Á heimasíðu Keflavíkur kemur fram að stuðningsmönnum félagsins gefist nú einstakt tækifæri á að kaupa þjálfarastarf liðanna og stýra liðinum í þessum stórleik. Núverandi þjálfari Keflavíkur, Sigurður Ingimundarson, mun ekki stjórna sínu liði í leiknum, þar sem hann verður upptekinn við það að spila með 1989-liðinu. Keflavík varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn árið 1989 og í liðinu voru Albert Óskarsson, Axel Nikulásson, Egill Viðarsson, Einar Einarsson, Falur Harðarsson, Guðjón Skúlasson, Jón Kr. Gíslasson, Magnús Guðfinnsson, Nökkvi Már Jónsson og Sigurður Ingimundarsson. Það má finna frekari upplýsingar um lokahófið og leikinn á heimasíðu Keflavíkur en fréttina þar má nálgast hér.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Sara Björk komin heim Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Fleiri fréttir Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Sjá meira