Magma: Tapaði rúmum 500 milljónum á síðasta ári 18. september 2009 13:40
Tap Magma Energy nam tæpum 4,5 milljónum dollara á síðasta rekstrarári félagsins (árið er júní til júní) eða rúmlega 500 milljónum kr. Af þessu tapi féllu tæplega 1,9 milljón dollara til á síðasta ársfjórðungi rekstrarársins. Ross Beaty formaður Magma er þó brattur í tilkynningu um uppgjörið sem sent var kauphöllinni í Toranto í vikunni. Hann bendir á að félaginu hafi tekist að afla sér yfir 130 milljóna dollara í nýju fjármagni, þar af 110 milljónum dollara með hlutafjáraukningu. „Við förum inn í annað rekstrarár okkar í heilbrigðu standi," segir Beaty. Fram kemur í uppgjörinu að handbært fé frá rekstri (working capital) hafi numið rúmlega 2,7 milljónum dollara við lok rekstrarársins. Þá eigi félagið enn ónýtta lánalínu upp að 20 milljónum dollara. Meðal helstu eigna Magma eru orkuverið Soda Lake í Nevada og nú stór hlutur í HS Orku.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira