Boston marði Milwaukee í framlengingu 16. nóvember 2008 11:44 Paul Pierce og félagar unnu numan sigur á Milwaukee NordicPhotos/GettyImages
Átta leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Boston lagði Milwaukee naumlega 102-97 í framlengdum leik á útivell. Paul Pierce skoraði 28 stig fyrir Boston og Ray Allen 27 en Kevin Garnett fór af velli með sína sjöttu villu þegar innan við tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Andrew Bogut skoraði 20 stig fyrir Milwaukee. Houston skellti New Orleans 91-82 á heimavelli. Yao Ming skoraði 21 stig fyrir Houston en David West var með 18 stig og 10 fráköst fyrir New Orleans. Chris Paul hitti illa í leiknum hjá New Orleans og skoraði 12 stig og gaf 12 stoðsendingar. Golden State færði LA Clippers áttuda tapið í níu leikjum með 121-103 útisigri. Baron Davis var með 25 stig og 11 stoðsendingar hjá Clippers gegn sínum gömlu félögum, en nýliðinn Anthony Morrow fór hamförum með 37 stigum og 11 fráköstum hjá Golden State. Atlanta tapaði heima fyrir New Jersey 119-107 og tapaði þar með þriðja leik sínum í röð eftir að hafa unnið fyrstu sex leiki sína á leiktíðinni. Joe Johnson skoraði 31 stig fyrir Atlanta en Devin Harris 33 fyrir New Jersey. Philadelphia rótburstaði Oklahoma 110-85. Thaddeus Young skoraði 23 stig fyrir Philadelphia en Jeff Green 21 stig fyrir Oklahoma. Cleveland þurfti að hafa mikið fyrir 105-93 sigri sínum á Utah Jazz á heimavelli, þar sem gestirnir voru án fjögurra fastamanna. LeBron James skoraði 38 stig fyrir Cleveland en Carlos Boozer 17 fyrir Utah. Portland átti góðan endasprett og lagði Minnesota 88-83 á útivelli. Brandon Roy skoraði 24 stig fyrir Portland en Al Jefferson skoraði 26 stig fyrir heimamenn. Loks vann Chicago sigur á Indiana á heimavelli 104-91. Nýliðinn Derrick Rose skoraði 23 stig og gaf 8 stoðsendingar fyrir Chicago en TJ Ford skoraði 16 stig fyrir Indiana.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira