Frönsk leik- og gjörningalist 25. júlí 2008 06:00 Marc Joseph Sigaud Höfundur sýningarinnar Skin & the Whales sem sýnd verður í Norræna húsinu um helgina.
Parques Majeures er franskur leik- og gjörningahópur sem hefur sérhæft sig í sýningum á nýstárlegri hreyfimyndalist. Hópurinn er um þessar mundir hér á landi í boði fyrirtækjanna Adami og Spedidam og hefur ferðast um landið með sýningu sína Skin & the Whales. Hún var til að mynda sýnd á Húsavík nú um síðustu helgi. Þeir höfuðborgarbúar sem eru sérlega áhugasamir um franska gjörningalist geta nú tekið gleði sína þar sem að sýningin verður sett upp í Norræna húsinu nú um helgina. Höfundur sýningarinnar er Marc Joseph Sigaud, en hún byggist upp í kringum hreyfimyndir sem varpað er í leikmyndina og að auki hreyfa leikarar sig inn og úr mynd. Sýningin skiptist upp í þrjá hluta þar sem fyrstu tveir hlutarnir takast á við mannslíkamann en þriðji hlutinn, Whales, fjallar um samband mannlegs eðlis við náttúruna. Þessi síðasti kafli verksins varð reyndar til fyrir tilstuðlan fyrstu ferðar Marcs Joseph til Húsavíkur fyrir tveimur árum og má því halda því fram að íslensk náttúra hafi enn á ný sannað áhrifamátt sinn. Sýningarnar í Norræna húsinu fara fram í kvöld og annað kvöld kl. 20. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.- vþ
Mest lesið Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Lífið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Lífið Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Lífið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Lífið Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum Tíska og hönnun Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira