25,000 dollara ummæli Rasheed Wallace 30. maí 2008 08:45 Rasheed Wallace á afar erfitt með að hemja skapsmuni sína NordcPhotos/GettyImages
Rasheed Wallace, leikmaður Detroit Pistons, er nú aðeins einni tæknivillu frá því að verða dæmdur í eins leiks bann með liði sínu í úrslitakeppni. Hann fékk sína sjöttu tæknivillu í úrslitakeppninni í fyrrakvöld fyrir að rausa í dómurum. Wallace var aukin heldur dæmdur til að greiða 25,000 dollara sekt fyrir fúkyrði sem hann lét falla um dómara leiksins eftir fimmta leikinn gegn Boston í fyrrakvöld. Detroit tapaði leiknum og berst fyrir lífi sínu á heimavelli í sjötta leiknum klukkan 00:30 í nótt. Hér fyrir neðan má sjá ummælin sem Wallace var sektaður fyrir, reyndar með ritskoðun. "Allir þessir (ritskoðað) dómar sem þeir (Celtics) fengu í þessum leik. Þið sáuð öll þetta (ritskoðað)! Margar af þessum svokölluðu villum voru bara leikaraskapur í leikmönnum Boston. Þeir voru að láta sig detta út um allan völl og þeir flauta á það (ritskoðað)! Þetta (ritskoðað) er ekki körfubolti. Þetta er bara (ritskoðað) skemmtun í þeirra augum. Þið ættuð að vita það (ritskoðað). Þetta er ekkert nema (ritskoðað) skemmtun í þeirra augum," sagði Wallace argur eftir fimmta leikinn. Ljóst er að Wallace verður að halda sér á mottunni í sjötta leiknum í nótt, því ef heimamenn vinna og Wallace fær tæknivillu - verður hann í leikbanni þegar liðin mætast í oddaleik í Boston á sunnudagskvöldið. Allir leikir í einvíginu verða sýndir beint á Stöð 2 Sport. Leikurinn í kvöld hefst sem fyrr segir klukkan hálfeitt eftir miðnætti og komi til oddaleiks verður hann á sama tíma á sunnudagskvöldið - einnig í beinni á Stöð 2 Sport.
NBA Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira