Sigurður: Ánægður með varnarleikinn 11. september 2008 00:04 Sigurður Ingimundarson "
Ég er rosalega kátur með þetta," sagði Sigurður Ingimundarson landsliðsþjálfari þegar Vísir náði tali af honum eftir 77-71 sigur Íslendinga á Dönum í Evrópukeppninni í kvöld. "Ég er mjög ánægður að vinna sigur í fyrsta leik. Ég hefði viljað vinna stærra, en það er fínt að fá sigur. Ég held við höfum leyst þetta sómasamlega þó við höfum ekki spilað neitt sérstakan leik sóknarlega," sagði Sigurður, sem var ánægðari með varnarleikinn. "Strákarnir spiluðu mjög góða liðsvörn og hjálpuðu vel og við vorum að taka það frá Dönunum sem þeir gera vel," sagði Sigurður og sagðist ánægður með hve fast íslensku leikmennirnir hefðu tekið á Dönunum. Næsti leikur íslenska liðsins er útileikur við Hollendinga á laugardaginn og þar stefnir Sigurður á að ná í mikilvægan útisigur. "Stefnan verður sett á sigur í Hollandi og þar erum við að mæta liði sem er ekkert ósvipað því danska. Þar munum við þó væntanlega spila meiri svæðisvörn. Þar eru líklega hávaxnari leikmenn en í danska liðinu en þeir eru reyndar ekki með mjög margar góðar skyttur. Svo eigum við Svartfellingana hérna heima á miðvikudaginn í næstu viku og þar vona ég að mæti enn fleiri áhorfendur en í kvöld. Við ætlum ekkert að leggjast niður fyrir því liði þó það eigi að teljast sterkasta liðið í riðlinum," sagði Sigurður.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Íslenski boltinn Hlupu inn á Formúlu 1-brautina: „Ég hefði getað drepið þá“ Formúla 1 Mark úr horni, klippa Eze og punghögg Haalands Enski boltinn Aldrei meiri aldursmunur Enski boltinn Hljóp í tólf klukkutíma rifbeinsbrotinn Sport Kvöddu húsið og Nablinn klifraði í kveðjuskyni Körfubolti Rakel Sara vann tvenn verðlaun á Norður-Evrópumótinu Sport Dagskráin í dag: Tommi og Nablinn á Extraleikunum Sport Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Íslenski boltinn Yfirburðir Norris sem er kominn á toppinn Formúla 1 Fleiri fréttir Kvöddu húsið og Nablinn klifraði í kveðjuskyni Martin naut sín í fræknum sigri á meisturum Bayern Tryggvi lykilmaður í sigri Bilbao Elvar skoraði tólf í naumu tapi Tilþrifin: Varin skot og ótrúlegar körfur Valsmanna Þriðja tapið í röð hjá Jóni og félögum Fáránlegt eða klókt hjá Kristófer? „Ef það má þá gerir fólk það“ Brassi tekur við af Billups „Það er æðislegt að kveðja húsið svona“ Uppgjörið: ÍA - Álftanes 76-74 | ÍA kvaddi Vesturgötuna með stæl Uppgjörið: Stjarnan - ÍR 91-93 | ÍR skellti meisturunum „Ekki æskilegt og ekki það sem körfuboltinn vill standa fyrir“ Nær fimmtán árum og ætlar með Ísland á HM Stjórnarmaður KKÍ auglýsir ólöglega veðmálastarfsemi Handtökur í NBA: Lak upplýsingum um meiðsli James og bað um bita af kökunni Mál Kristófers enn til skoðunar og fleiri komin á borð KKÍ Uppgjörið: Ármann-Keflavík 94-107 | Öruggt hjá Keflvíkingum Daníel: Ég fór í smá ævintýra starfsemi Uppgjörið: Þór Þ. - Valur 117-119 | Vals sigur eftir tvær framlengingar Uppgjörið: Njarðvík-Tindastóll 98-90 | Njarðvíkingar skelltu Stólunum Átti sumar engu öðru líkt „Ég held að bæði lið séu ekkert himinlifandi með sína frammistöðu“ Uppgjörið: Grindavík-KR 78-77 | Arnór Tristan með sigurkörfuna Þjálfari og leikmaður í NBA handteknir Sá eftirsóttasti treystir bara á pabba gamla Þrenna Maddie Sutton dugði ekki á Hlíðarenda Elvar tapaði á grátlegan hátt á móti gömlu félögunum Uppgjör: Keflavík - Haukar 94-84 | Keflvíkingar tóku Íslandsmeistarana Nablinn sparkaði upp hurðinni í byrjun þáttarins Pedersen með landsliðið til 2029 Sjá meira