Viðskipti innlent

Mjög lítil velta á hlutabréfamarkaði

Gengi bréfa í færeyska bankanum Eik Bank féll um 24 prósent í Kauphöllinni í dag. Century Aluminum fór niður um 17,6 prósent, Atlantic Petroleum um 11,26 prósent, bréf Bakkavarar um 10,99 prósent og Marels um 6,49 prósent. Hlutabréf Færeyjabanka lækkaði um 1,95 prósent, Össurar um 1,77 prósent, Atlantic Airways um 1,59 prósent og Icelandair um 0,62 prósent. Þá lækkaði Alfesca um 0,17 prósent. Viðskipti voru afar fá í Kauphöllinni og heildarveltan rúmir 350 milljónir. Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,52 prósent og stendur hún í 3.044 stigum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×