Tveir á reynslulausn á meðal hinna handteknu 16. október 2008 18:30
Líkt og Vísir greindi frá fyrr í dag hefur lögreglan handtekið fjóra karlmenn í tengslum við fíkniefnaframleiðsluna í Hafnarfirði. Þrír hinna handteknu, sem allir eru íslendingar, eru á þrítugsaldri og einn á fertugsaldri. Samkvæmt heimildum Vísis eru tveir af þessum mönnum þeir Jónas Ingi Ragnarsson og Tindur Jónsson. Jónas Ingi kom við sögu í einu umtalaðasta sakamáli síðari ára. Hann var einn þeirra sem hlaut fangelsisdóm í hinu svokallaða "Líkfundarmáli" á Neskaupsstað. Fyrir aðild sína að málinu hlaut Jónas Ingi tveggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir innflutning á um 230 grömmum af amfetamíni sem Litháinn Vaidas Jucevicius var með innvortis þegar hann kom hingað til lands.Vaidas veiktist eftir komu sína til landsins og lést í kjölfarið vegna stíflu í mjógirni af völdum fíkniefnapakninganna. Heimildir Vísis herma að Jónas Ingi hafi verið handtekinn í iðnaðarhúsnæðinu í Hafnarfirði í dag. Tindur Jónsson hlaut sex ára fangelsisdóm, 19 ára gamall, fyrir hrottalega líkamsárás í Garðabæ árið 2005 þegar hann réðist að öðrum pilti vopnaður sveðju. Í ágúst 2007 þegar Tindur afplánaði dóm sinn á Kvíabryggju hóf hann nám í efnafræði við Háskóla Íslands. Tindur fékk reynslulausn fyrir skömmu og átti um 1000 daga eftir af henni. Þeir voru báðir úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald í dag.
Líkfundarmálið Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Sjá meira