Formúlu 1 ökumenn og forráðamenn FIA kynntu nýstárlega 10 þrepa ráðleggingar til handa ökumönnum í Tokyo í dag. Til að minna á átakið, þá eru allir Formúlu 1 bílar á dekkjum með grænum strípum þessa mótshelgina á Fuji brautinni í Japan.
Formula 1 íþróttinn verður notuð sem stökkpallur í nýrri herferð alþjóðabílasambandsins (FIA) til að kynna umhverfisvænni akstur og umhirðu bíla.
"Ég reyni persónulega að keyra sem minnst, þegar ég er ekki að keppa í Formúlu 1. Ég nota alltaf GPS tæki til að rata á milli staða til að spara bensín og hirði vel um bílinn í alla staði", segir Lewis Hamilton hjá McLaren. Hann er einn af ökumönnum sem kynnti átakið í Tokyo í dag.
,,Þegar ég er heima í Sviss þá nota ég almenningssamgöngur, til að festast ekki i umferðarhnútum, eða hjóla. Ég reyni að gera mitt til hjálpar umhvefismálum."
Ummæli Hamilton kunna koma einhverjum spánskt fyrir sjónir, þar sem Formúlu 1 bíll eyðir allt að 70 lítrum af eldsneyti á hundraðið. Reyndar er FIA að vinna hörðum höndum af því að búa til reglur sem gera á íþróttina umhverfisvænni á næstu árum.
Merking Bridgestone dekkjanna fyrir mótið í Japan um helgina er fyrsti liðurinn í alþjóðlegu kynningarátaki FIA til handa almenningi. Fyrstu æfingar keppnisliða verða í nótt í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, en í þættinum Rásmarkið kl. 20.00 í kvöld verður fjallað um átak FIA og væntanlegt mót í Japan.