Exista á 10 aura og - Straumur á rúman túkall 9. desember 2008 10:00 Bakkabræður. Mynd/GVA
Gengi hlutabréfa í Existu hrundi um 97,8 prósent og bréf Straums 64,7 prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni. Viðskipti með bréf beggja félaga hafa verið á salti í rúma tvö mánuði. Fyrsta sölutilboð í bréf Existu hljóðuðu upp á 1,99 krónur á hlut en fór fljótlega niður í 1,95. Það féll fljótlega í 1,8 krónur á hlut en stendur nú í litlum 10 aurum. Það jafngildir 97,8% lækkun. Tilboð í bréf Straums nam fimm krónum á hlut áður en viðskipti hófust. Það lækkaði fljótlega og stendur nú í 2,59 krónum á hlut. Þegar viðskipti voru stöðvuð með hlutabréf Existu 6. október síðastliðinn stóðu þau í 4,62 krónum á hlut. Síðan þá hafa Bakkabræður keypt Bakkavör undan fyrirtækjahattinum og lagt inn yfirtökutilboð í rest. Þá samþykktu hluthafar afskráningu félagsins. Það verður tekið af markaði á föstudag. Þá stóð gengi bréfa í Straumi í sjö krónum á hlut þegar viðskipti með bréf fjárfestingarbankans voru stöðvuð í október.Gengi þeirra stendur nú í 2,5 krónum á hlut. Ef frá eru skilin viðskipti með þessi tvö félög einkennir lækkun byrjun dagsins í Kauphöllinni. Gengi bréfa í Össuri hefur lækkað um 0,3 prósent og í Marel Food Systems um 0,25 prósent. Þá hefur Bakkavör hækkað um 2,87 prósent á sama tíma. Úrvalsvísitalan hefur fallið um 40,45 prósent og stendur Úrvalsvísitalan í 393 stigum.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira