Flogið til móts við viðskiptaengla 9. apríl 2008 00:01 Talið er að aldrei hafi fleiri gestir fylgst með þeim sprotafyrirtækjum sem kynntu starfsemi sína á fjárfestaþingi Seed Forum. Markaðurinn/GVA „
Það er nauðsynlegt að brúa bilið á milli Klaks, sem styður við nýsköpunar- og sprotafyrirtæki, og fagfjárfestingarsjóða. Fyrirtæki sem eru að komast af klakstigi þurfa að komast í hendurnar á góðu fólki sem er tilbúið til að veita þeim fjármagn og hjálpa til við reksturinn,“ segir dr. Eggert Claessen, en hann er í forsvari fyrir samtök viðskiptaengla, Iceland Angels, þeim fyrstu hér á landi. Að sögn Eggerts hefur lengi verið unnið að stofnun samtakanna en það var kynnt til sögunnar í kjölfar fjárfestingaþingsins Seed Forum sem fram fór á föstudag. Samtök sem þessi eru þekkt utan landsteinanna, sérstaklega í Bandaríkjunum og Skotlandi. Þau mynda fjársterkir einstaklingar, svokallaðir viðskiptaenglar, sem hafa áhuga á að fjárfesta í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum, sem eru mislangt á veg kominn í vöruþróun sinni. Fjárfestarnir setjast gjarnan í stjórn fyrirtækjanna sem þeir fjárfesta í. Umgjörðin er að miklu leyti fengin frá LINC – viðskiptaenglaneti í Skotlandi – en David Grahame, framkvæmdastjóri þess, hélt kynningu á starfsemi þeirra á fjárfestaþingi Seed Forum á föstudag. Auk Grahames hélt Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra tölu á þinginu um stuðning ríkisins við íslensk sprotafyrirtæki.- jab
Héðan og þaðan Mest lesið Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent