Benedikt: Viljum kvitta fyrir tapið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. nóvember 2007 14:15 Benedikt Guðmundsson og Avi Fogel, leikmaður KR. Mynd/Völundur
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Íslandsmeistara KR, fagnar tækifærinu á að hefna fyrir tapið í Grindavík í deildinni í haust en liðin mætast í 16-liða úrslitum Lýsingarbikarkeppni karla. „Mér líst vel á þetta," sagði Benedikt. „Ég er ánægður með að fá heimaleik en það er alveg ljóst að þetta verður ekki auðvelt. Við töpuðum fyrir þeim í deildinni í Grindavík og er gaman að fá tækifæri til að kvitta fyrir það." Grindavík hefur unnið síðustu sjö leiki sína á leiktíðinn og aðeins tapað einum, gegn Keflavík í fyrstu umferðinni. „Það er heldur betur sigling á þeim og eins og staðan er í dag er Grindavík annað tveggja sterkustu liða í deildinni. Liðið er með allt til alls og getur náð góðum árangri í vetur." KR er í þriðja sæti deildarinnar með tólf stig, tveimur á eftir Grindavík. Benedikt segir að liðið ætli sér að sjálfsögðu að gera allt sem í valdi þess stendur til að komast áfram í fjórðungsúrslit bikarkeppninnar. „Við leggum áherslu á að vinna alla okkar leiki. Bikarinn er stór titill sem öll lið ætla sér að vinna og erum við engin undantekning frá því. Við erum langt frá því að vera saddir þó við unnum þann stóra í vor." KR lék í dögunum í Tyrklandi í Evrópukeppninni og segir Benedikt að leikmenn séu að ná sér af mestu ferðaþreytunni. „Þetta var 36 tíma ferðalag og því nokkuð strembið. En við eigum leik á sunnudaginn gegn Hamri og hefur KR tapað síðustu þremur leikjum liðanna. Það er því kominn tími til að snúa því við."
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Dagskráin í dag: Haaland í Portúgal, Formúla 1 og kapphlaup Blika og FH-inga Sport Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti Fleiri fréttir „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Sjá meira