Körfubolti

Jeff Green tekur við Hetti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hattarmönnum er fullalvara með ráðningu Green.
Hattarmönnum er fullalvara með ráðningu Green. Nordic Photos / Getty Images

Ný-sjálenski þjálfarinn hefur tekið við 1. deildarliði Hattar. Green er afar umdeildur í heimalandi sínu en segist stefna á Íslandsmeistaratitilinn með Hetti.

Þetta staðfestir Eymundur Sigurðsson, formaður körfuknattleiksdeildar Hattar.

Jeff Green mun koma til landsins í kvöld en tveir leikmenn koma einnig með honum, Ben Hill og Everard Bartlett.  

Hattarmenn hafa ekki náð sér á strik undanfarið og unnu aðeins tvo leiki af fjórtán á síðasta tímabili í 1. deildinni.

Árið 2006 féll liðið úr úrvalsdeild karla en þá vann liðið þrjá leiki af 22 og endaði í neðsta sæti deildarinnar.

„Ég er virkilega spenntur,“ sagði Green í viðtali við ný-sjálenskan fréttamiðil. „Þetta er alveg nýtt og öðruvísi. Þetta er góð áskorun. Auðvitað er staða liðsins ekki góð en um það snýst málið. Maður fær aldrei tækifæri með liði sem hefur unnið allt. Eina ástæðan fyrir því að félag vill ráða nýjan þjálfara er að bæta gengið.“

Ferill Green í Nýja-Sjálandi er ansi skrautlegur. Hann hefur náð góðum árangri í heimalandi sínu en hefur til að mynda þurft að hætta störfum hjá þarlendu félagi eftir að hafa lent í útistöðum við framkvæmdarstjóra félagsins vegna hegðunar sinnar.

Hann hefur í ófá skipti fengið sektir fyrir brjálæðisköst sín á hliðarlínunni. Í ágúst síðastliðnum var hann sektaður um 500 dollara fyrir að láta dómara heyra það í miðjum leik.

Ben Hill er 28 ára framherji sem er með breskt vegabréf og telst því sem Bosman-leikmaður. Hann var nýverið valinn í nýsjálenska landsliðið.

Bartlett er 21 árs bakvörður sem þykir mikið efni. Hann er duglegur að skora og fór mikinn í háskólaboltanum á Nýja-Sjálandi á síðasta tímabili. Hann þykir hins vegar einnig skapmikill leikmaður en hefur lagast þó að undanförnu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×