Körfubolti

Haukar í úrslitin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Haukakonur lyfta sigurlaunum sínum fyrir sigur í Powerade-bikarkeppninni í fyrra á loft.
Haukakonur lyfta sigurlaunum sínum fyrir sigur í Powerade-bikarkeppninni í fyrra á loft. Mynd/Daníel

Haukar komust í kvöld í úrslit Powerade-bikarkeppni kvenna með sigur á Val í undanúrslitum.

Sigur Hauka var öruggur í kvöld, lokatölur 70-47. Haukar hafa titil að verja eins og reyndar á öllum mótum tímabilsins.

Valsmenn byrjuðu reyndar betur og komust í forystu um miðjan fyrsta leikhluta. En þá komust Haukar í gang og þeir leiddu í hálfleik, 33-27.

Síðari hálfleikur var nánast einstefna að hálfu Hauka.

Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði flest stig Hauka, nítján talsins. Hjá Val skoraði Signý Hermannsdóttir níu stig.

Haukar mæta annað hvort Grindavík eða Keflavík í úrslitum en nú stendur yfir viðureign þeirra í Laugardalshöllinni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×