Stjörnufréttamaður hrapaði á botninn Óli Tynes skrifar 5. september 2007 13:15 Jeppe Nybroe.
Hún var hröð niðurleiðin hjá danska stjörnufréttamanninum Jeppe Nybroe, hjá danska sjónvarpinu. Fyrir nokkrum mánuðum var hann einn af virtustu fréttamönnum Danmerkur. Í dag er hann atvinnulaus og það eru birtar háðslegar myndir af honum á You Tube.Jeppe Nybroe varð uppvís af því að falsa myndir af brottflutningi danskra hermanna frá Írak í sumar. Hann birti þá uppistand með sjálfum sér og myndir af bílalest sem hann sagði að væri að flytja síðustu dönsku hermennina frá Írak. Í raun var Nybroe í Kúveit og bílalestin á leið inn í Írak til þess að sækja Danina.Nybroe hefur einnig verið sakaður um að hafa notað sömu sprengingarnar og skothvellina aftur og aftur í sömu frétt, til þess að hún yrði áhrifameiri. Fyrst þegar þetta komst upp var Nybroe sendur í frí. Viðbrögðin í Danmörku voru hinsvegar slík að Danska sjónvarpið komst að þeirri niðurstöðu að honum yrði aldrei treyst aftur.Ferli hans hjá sjónvarpinu lauk því síðastliðinn mánudag.
Erlent Mest lesið Eyjólfur færir klukkuna aftur Innlent Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Innlent „Margir staðir og margir sakborningar“ Innlent Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum Innlent Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Innlent Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Erlent Noem rekin Erlent Rannsakar geimveður fyrir Bandaríkjaher Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Sjá meira