Bandarísk einkaneysla jókst umfram spár 31. ágúst 2007 13:15 Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna. Greinendur telja auknar líkur á því að seðlabankinn lækki stýrivexti á næsta fundi sínum í október. Mynd/AFP
Einkaneysla í Bandaríkjunum jókst um 0,4 prósent á milli mánaða í júlí samanborið við 0,2 prósent í mánuðinum á undan. Þetta er nokkru yfir væntingum. Á sama tíma benda tölur viðskiptaráðuneytis Bandaríkjanna til þess að verðbólga hafi hjaðnað. Greinendur segja greinilegt að bandarískt efnahagslíf hafi verið í hröðum vexti þegar samdráttur varð á bandarískum fasteignalánamarkaði í seinni hluta júlí. Fyrri áætlanir viðskiptaráðuneytisins gerðu ráð fyrir 0,1 prósents vexti í einkaneyslu í júní og 0,3 prósent í júlí. Niðurstaðan er því yfir væntingum. Bloomberg bendir sömuleiðis á að seðlabanki Bandaríkjanna hafi ítrekað sagt að komi fram vísbendingar um verðbólguhjöðnun gætu stýrivextir lækkað. Niðurstöðurnar nú auka líkurnar meir en áður að bankinn lækki stýrivexti á næsta vaxtaákvörðunarfundi sínum í september og koma þannig til móts við þreningar á fasteignalánamarkaði sem kominn er til vegna hárra vaxta sem aukið hefur greiðslubyrði Bandaríkjamanna, að mati Bloomberg.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Bræður selja Vagna og þjónustu eftir 40 ára rekstur Viðskipti innlent Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Samstarf Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Neytendur Fanney tekur við af Erni hjá Lex Viðskipti innlent Þórður Már til Faxaflóahafna Viðskipti innlent Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Viðskipti innlent Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Samstarf Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Neytendur Stjórn Íslandsbanka vill greiða tólf milljarða í arð Viðskipti innlent „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Mega ekki kenna haframjólk við mjólk Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira