Leikjavísir

PlayStation 3 lækkar í verði

PlayStation 3 leikjatölva.
PlayStation 3 leikjatölva.

Japanski tækniframleiðandinn Sony hefur lækkað verð á nýjustu PlayStation 3 leikjatölvunni (PS3) í Bandaríkjunum um 17 prósent með það fyrir augum að auka sölu á tölvunni. Þetta jafngildir því að verðið lækkar um 100 bandaríkjadali, rúmar sex þúsund íslenskar krónur og kostar tölvan nú 500 dali út úr búð í Bandaríkjunum, eða 30.500 íslenskar krónur.

Breska ríkisútvarpið bendir á að leikjatölvan frá Microsoft, Xbox 360, sé einungis 20 dölum ódýrari en PS3 leikjatölvan. Báðar tölvurnar eru hins vegar tvöfalt dýrari en Wii-leikjatölvan frá Nintendo, sem hefur átt miklum vinsældum að fagna.

Nintendo seldi 1,78 milljón leikjatölvur í Japan á fyrstu sex mánuðum árs. Sony hefur seldi á sama tíma rétt rúmlega hálfa milljón leikjatölva en Microsoft rúmlega 122 þúsund tölvur.

Aðra sögu er hins vegar að segja á bandaríska leikjatölvumarkaðnum en þar ber Nintendo höfuð og herðar yfir hina keppinautana tvo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.