Mótmæli í Íran vegna eldsneytisskömmtunar Jónas Haraldsson skrifar 27. júní 2007 06:54 Almenningur í Íran sést hér fjölmenna á bensínstöð í von um að tryggja sér bensín áður en skömmtunin skall á. MYND/AFP
Kveikt var í að minnsta kosti einni bensínstöð í höfuðborg Íran, Tehran, eftir að stjórnvöld tilkynntu um eldsneytisskömmtun í landinu. Stjórnvöld tilkynntu með aðeins tveggja klukkutíma fyrirvara að ökumenn myndu aðeins mega kaupa 100 lítra af bensíni á einkabíla á mánuði. Ástæðan fyrir þessari óvæntu ákvörðun er talin vera ótti við áhrif refsiaðgerða Sameinuðu þjóðanna. Íran er eitt olíuauðugusta ríkis heims en hefur ekki nógu margar hreinsistöðvar og verður því að flytja inn eldsneyti. Í höfuðborginni Tehran var mikið um mótmæli og almenningur hrópaði slagorð gegn forseta landsins, Mahmoud Ahamadinejad. Langa biðraðir mynduðust við bensínstöðvar og fregnir bárust af átökum á meðal ökumanna sem voru að reyna að komast að áður en skömmtunin skall á klukkan hálfníu í gærkvöldi að íslenskum tíma. Eldsneyti í Íran er greitt verulega niður af stjórnvöldum. Bensín þar er selt á aðeins fimmtung af raunverði þess en talið er að skömmtunin eigi eftir að leiða til hækkandi verðbólgu í landinu. Sem stendur kostar líter af bensíni tæpar sjö íslenskar krónur en raunvirðið er nálægt 35 krónum, rúmlega þrisvar sinnum lægra en á Íslandi. Bandaríkin hafa sagt að innflutningur Írana á eldsneyti sé hugsanlegt verkfæri í kjarnorkudeilu þjóðanna.
Erlent Mest lesið Alvöru inniveður um helgina Innlent Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Innlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Gul viðvörun og enn líkur á eldingum Veður Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Erlent Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Hvalfjarðargöng lokuð Innlent Tveir grunaðir um stórfellda líkamsárás í miðbænum Innlent Listamönnum fækkar ört Innlent Fleiri fréttir Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Sjá meira