Ætlaði ekki að gera honum mein Guðjón Helgason skrifar 6. júní 2007 19:15
Maðurinn sem reyndi að stökkva upp í bíl Benedikts páfa á ferð á Péturstorginu í Róm í morgun hefur átt við geðræn vandamál að stríða og vildi með athæfinu vekja athygli á sjálfum sér. Hann mun ekki hafa ætlaði að gera páfa mein. Benedikt páfi sextándi var á ferð í bíl sínum um Péturstorgið og veifaði til mannfjöldans á leið sinni að Péturskirkjunni þaðan sem hann ætlaði að flytja vikulega hugvekju sína 35 þúsund gestum. Þar sem páfi veifaði til mannfjöldans á leið sinni í morgun skipti engum togum að karlmaður vatt sér að bílnum og reyndi að stökkva upp í hann á ferð. Hann var kominn alveg að bílnum þegar öryggisverðir réðust á hann og sneru niður. Páfi virðist ekki hafa veitt þessu athygli eins og sjá má á þessum myndum og ekki var ferð hans stöðvuð á meðan maðurinn var yfirbugaður. Páfi flutti síðan hugverkju sína eins og ekkert hefði í skorist. Maðurinn var yfirheyrður af lögreglu og síðan fluttur til rannsókna á nærliggjandi geðsjúkrahúsi. Að sögn talsmanns páfa er maðurinn frá Þýskalandi, 27 ára að aldri og hefur átt við geðræðn vandamál að stríða. Páfi keyrir um í sérhönnuðum bíl sem er meðal annars með stóru skotheldu glerhúsi, svo páfi geti staðið uppréttur á ferð. Glerhúsið var þó ekki á bílnum í dag enda það ekki notað á ferðum um Péturstorgið. Bíllinn sem nú er notaður var sérhannaður fyrir páfann eftir að Tyrkinn Mehmet Ali Agca reyndi að myrða Jóhannes Pál páfa annan á Péturstorginu 1981.
Erlent Fréttir Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira