Í mál af því að hann dó ekki Óli Tynes skrifar 7. maí 2007 15:50 John var meðal annars búinn að undirbúa og borga fyrir jarðarför sína.
Þegar læknar sögðu John Brandrick að hann væri með krabbamein í briskirtli og ætti aðeins sex mánuði eftir ólifað, brá honum auðvitað í brún. Læknar höfðu fundið sjö sentimeetra langt æxli í þessum sextíu og tveggja ára gamla breska afa. John ákvað þó að gera það besta úr öllu saman og lifa lífinu lifandi. Það er að segja því sem eftir væri af því. Hann hætti að vinna, hætti að borga af húsinu sínu og tók allt sparifé sitt út úr bankanum. Svo lifði hann eins og kóngur. Borðaði á dýrustu veitingahúsum. Flaug á fyrsta farrými fram og aftur um heiminn. Gaf Rauða krossinum öll fötin sín nema sumarfötin, því hann átti jú ekki að sjá annan vetur. Peningarnir voru búnir og rúmlega það, þegar læknarnir sögðu honum að það hefðu orðið smá mistök. Æxlið var góðkynjað og hann gæti þessvegna orðið 100 ára. John var býsna glaður að heyra það. En hann var líka býsna blankur. Hann hefur höfðað mál gegn breska heilbrigðiseftirlitinu til að fá aftur eitthvað af öllum þeim peningum sem hann eyddi eftir að honum var sagt að hann væri að hrökkva uppaf.
Erlent Mest lesið Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Dagný Ósk látin Innlent Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES Innlent Veturinn verði Rússum erfiður Erlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Innlent Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Erlent „Mjög stór og mikilvæg niðurstaða fyrir okkur“ Innlent Fleiri fréttir Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Sjá meira