Nokia kynnir gullsíma 24. apríl 2007 13:38
Finnski símaframleiðandinn Nokia kynnti á dögunum nýjan síma í eðalsímalínunni 8800 Sirocco. Síminn ber nafnið Nokia 8800 Sirocco Gold og er húðaður með 18 karata gulli og skreyttur með hvítagulli. Honum fylgir Bluetooth headset í svipuðu útliti. Sirocco er nafnið á lúxus símalínunni frá Nokia. Nafnið Sirocco er dregið af eyðimerkurvindi sem blæs í Sahara eyðimörkinni. Símar í Sirocco línunni eru ekki bara flottir og dýrir, heldur líka mjög vel búnir. Þeir hafa meðal annars 2 megapixla myndavél, 262 þúsund lita skjá, FM útvarp og Bluetooth. Yfir skjánum er safírgler (eins og er oft á dýrum úrum), ytra byrði símans er úr stáli og flipinn er sérstaklega útbúinn til að renna mjúklega utan af takkaborðinu þegar hann er opnaður. Nokia 8800 Sirocco Gold mun vera kominn í sölu í Evrópu og kostar þar um 1000 evrur, án skatta og áskriftarsamninga. Það er ekki vitað hvort hann komi í sölu hér á landi, en það má telja að verðið verði á milli hundrað og tvö hundruð þúsund krónur, að minnsta kosti. Til samanburðar má nefna að Nokia 8800 Sirocco úr stáli kostar hjá Hátækni 109.990 krónur.
Tækni Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira