Sögulegt samkomulag í höfn 26. mars 2007 18:16
Sögulegt samkomulag tókst í dag um myndun heimastjórnar á Norður-Írlandi. Leiðtogar Sambandsflokksins og Sinn Fein sömdu um þetta á fundi í morgun en þar til þá höfðu þeir aldrei hist augliti til auglits. Nýja stjórnin tekur til starfa 8. maí næstkomandi. Samkomulagið er sögulegt en þar til í dag höfuð Ian Paisley, leiðtogi Lýðræðislega sambandsflokksins, og Gerry Adams, formaður Sinn Fein, stjórnmálaarms Írska lýðveldishersins, IRA, aldrei fundað. Paisley hafði ekkert viljað ræða beint við leiðtoga Sinn Fein. Peter Hain, Norður-Írlandsmálaráðherra bresku ríkisstjórnarinnar, hafði gefið frest til dagsins í dag að mynda stjórn ellegar yrðu völd aftur færð til Lundúna þar sem þau hafa verið síðustu fjögur árin eða frá því heimastjórnarþingið var leyst upp vegna ásakana um að IRA hefði njósnað um andstæðinga sína á þingi. Gerry Adams segir samkomulagið marka upphafið að tímabili í stjórnmálum á Norður-Írlandi. Ian Paisley segir að á næstu dögum taki framkvæmdastjórnir allra flokka þátt í að móta stjórn. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir þetta mikilvægan dag fyrir íbúar Norður-Írlands. Allt sem hafi verið gert síðasta áratuginn hafi verið undirbúningur fyrir þetta samkomulag. Það þótti til marks um að enn er grunnt á því góða á milli leiðtoganna að þeir tókust ekki í hendur að blaðamannafundinum loknum. Hreyfingar þeirra hafa jú borist á banaspjótum áratugum saman.
Erlent Fréttir Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Sjá meira