250 tonn af stáli á hafsbotni 19. mars 2007 19:45
250 tonn af stáli, sem nota átti til hafnarframkvæmda á Akureyri, hvíla nú í votri gröf. Saga þessarar járnavöru hefur verið reyfarakennd og leið hennar norður þyrnum stráð! Það ætlar að ganga illa fyrir hafnarstjórann á Akureyri að fá til sín hráefni í stálþil eitt mikið sem nota á í lengingu Oddeyrarbryggju. Þegar kaupa átti stálið virtist sem sú flutningsleið væri ein fær að stálið kæmi frá meginlandi Evrópu til Reykjavíkur og færi þaðan á flutningabílum landleiðina frá Reykjavík til Akureyrar. Þetta fannst Herði Blöndal hafnarstjóra út í hött. Til að minnka slit á þjóðvegum landsins og styrkja sjóflutninga táknrænt krafðist hafnarstjórinn þess í mikilli rimmu að hann fengi stálið sjóleiðina. Og hafði loks sigur. En örlögin hafa nú orðið til þess að stálþilið liggur á hafsbotni og kemst hvorki land- né sjóleiðina úr þessu. Skýringin? Jú, stálþilið var í pörtum í opnum gámum um borð í flutningaskipinu Kársnesi sem fékk á sig brotsjó nýverið. Gámarnir fóru í hafið með stálinu góða og verður hvorki flutt landleið né sjóleið úr þessu. Þetta þýðir þó ekki að framkvæmdum seinki við höfnina.
Fréttir Innlent Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Innlent „Þetta er ekkert grín“ Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið Innlent Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma Innlent Fleiri fréttir Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Sjá meira