FBI misnotaði vald sitt 10. mars 2007 11:15 Robert Mueller, stjórnandi FBI, svarar fréttamönnum á fréttamannafundi í gærkvöldi. MYND/AFP
Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, misnotaði vald sitt til þess að nálgast upplýsingar um fólk sem hún hafði engan rétt á því að fá. Þetta kemur fram í skýrslu sem að eftirlitsstofnun innan dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna gaf frá sér í gær. FBI hefur þegar viðurkennt mistök sín. Robert Mueller, stjórnandi FBI, sagði að hann bæri ábyrgð á misnotkuninni. Hann sagði jafnframt að hann myndi gera allt í sínu valdi til þess að leiðrétta mistökin og koma í veg fyrir að þau gætu átt sér stað aftur. Í skýrslunni frá dómsmálaráðuneytinu kemur fram að FBI hafi orðið sér út um svokölluð þjóðaröryggisbréf og notað þau til þess að verða sér úti um upplýsingar sem stofnunin átti ekki rétt á að fá. Einnig kom fram að stofnunin hefði aðeins sagt frá minnihluta bréfa sem hún hefði orðið sér út um. Bréf þessi virka svipað og dómsúrskurður um leitarheimild. Aðalsaksóknari bandaríska ríkisins, Alberto Gonzales, sagði að um alvarleg brot á öryggislöggjöf Bandaríkjanna væri að ræða og að það yrði að taka á þeim hið fyrsta. Þrátt fyrir það tók hann fram að þjóðaröryggisbréfin væru nauðsynleg öryggi Bandaríkjanna og við þeim mætti ekki hrófla.
Erlent Fréttir Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Sjá meira