Ísfirðingar illa sviknir af Marel 2. mars 2007 12:17
Marel hefur greitt atvinnulífi Ísafjarðar þungt högg, segir bæjarstjórnin, með ákvörðun um að hætta starfsemi fyrirtækisins á Ísafirði í haust. Þá missa um 25 manns vinnuna. Bæjarfulltrúi Í-listans segir bæjarbúa illa svikna.Marel hefur greitt atvinnulífi Ísafjarðar þungt högg, segir bæjarstjórnin, með ákvörðun um að hætta starfsemi fyrirtækisins á Ísafirði í haust. Þá missa um tuttugu og fimm manns vinnuna. Bæjarfulltrúi Í-listans segir bæjarbúa illa svikna.Marel tilkynnti í síðustu viku að það hygðist loka starfsstöð fyrirtækisins á Ísafirði þann fyrsta september næstkomandi. Þrjú ár eru síðan Marel keypti ísfirska fyrirtækið Póls hf. og ári síðar voru félögin sameinuð. Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti samhljóða í gær tillögu Í-listans, sem er í minnihluta, um atvinnumál þar sem segir meðal annars forráðamenn Marels hafi brugðist vonum og trausti Ísfirðinga. Bent er á að við sameiningu fyrirtækjanna hafi Marel eignast þróunarvinnu og þekkingu sem byggst hafi upp á rúmum þremur áratugum á Ísafirði. Sigurður Pétursson oddviti Í-listans segir fjarri því að það hafi legið fyrir þegar Marel keypti Póls að stöðinni yrði hugsanlega lokað. Þvert á móti hafi menn talað um að starfsemin yrði líklega styrkt og aukin.Tvær meginstoðir atvinnulífs á Ísafirði eru sjávarútvegur og hátækniiðnaður tengdur honum, segir Sigurður, Marel var annað stærstu fyrirtækjanna í þeim hátækniiðnaði. Þetta sé því gríðarlegt áfall fyrir atvinnulíf staðarins.
Fréttir Innlent Mest lesið Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Engar ruslatunnur í Grindavík Innlent Fleiri fréttir Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Frægasti köttur landsins týndur Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Engar ruslatunnur í Grindavík Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Sjá meira