Íbúar í Uppsölum slegnir 27. febrúar 2007 18:45
6 létust þegar tveir strætisvagnar á leið í gagnstæða átt rákust saman rétt utan við borgina Uppsali í Svíþjóð í morgun. Á fimmta tug til viðbótar slösuðust, þar af nokkrir lífshættulega. Ekki er vitað til þess að nokkrir Íslendingar hafi verið í vögnunum þegar slysið varð. Slysið varð á áttunda tímanum í morgun nærri Lejsta, sem er um 20 kílómetra norð-austur af Uppsölum. Strætisvagnarnir voru báðir fullir af fólki. 3 eru sagðir í lífshættu og 7 alvarlega slasaðir. 30 til 40 til viðbótar hlutu minni áverka. 10 sjúkrabílar frá öllum nærliggjandi borgum voru kallaðir á vettvang. Vagnarnir fóru afar illa í árekstrinum og því gekk erfiðlega að komast að slösuðum í þeim. Sem dæmi rifnaði nær öll önnur hliðin af öðrum þeirra. Þyrlur fluttu þá sem verst voru slasaðir á Háskólasjúkrahúsið í Uppsölum. Vitni að slysinu fengu þegar áfallahjálp, sem og þeir sem slösuðust lítillega. Ekki er vitað til þess að Íslendingar hafi verið í vögnunum en þeir eru fjölmargir í hópi íbúa á svæðinu. Margrét Atladóttir er búsett í Uppsölum. Hún segir íbúa þar slegna vegna atburðanna og fát hafa verið á vinnufélögum sínum í morgun. Þeir hafi flestir verið í símanum að kanna hvort ættingjar og ástvinir hafi verið í vögnunum. Þeir séu mikið notaðir til að koma sér til vinnu í Uppsölum á morgnana. Ekki er vitað með vissu hvað olli slysinu en töluverð hálka var á veginum. Honum var þegar lokað.
Erlent Fréttir Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Sjá meira