Alvarlegt lestarslys á Englandi 24. febrúar 2007 12:15
Einn týndi lífi og tæplega 80 slösuðust, þar af 5 lífshættulega, þegar hraðlest fór af sporinu á norðvestur Englandi í gærkvöldi. Lestin var á leið frá Lundúnum til Glasgow í Skotlandi með um 120 farþega. Talið er að aðskotahlutur hafi verið á lestarteinunum og lestin því farið út af sporinu. Það hefur þó ekki fengist staðfest og jafnvel talið að bilun hafi orðið í rafmagnsleiðslum á teinunum og það valdið slysinum. Framkvæmdir hafa staðið yfir síðustu viku á þeim stað þar sem slysið varð - 435 kílómetrum norð-vestur af Lundúnum. Einn farþegi, eldri kona, lést af sárum sínum á sjúkrahúsi. Fimm eru í lífshættu. Talið er að það taki fimm til sex daga að rannsaka vettvang slyssins áður en hægt verður að fjarlægja flak lestarinnar. Björgunarmenn áttu erfitt með að komast að farþegunum í nótt vegna slagveðurs. Einhverjir þeirra sátu fastir í vögnum sem höfuð farið á hvolf og festst í raflínum sem höfuð fallið til jarðar. Einn vagn hékk á brún hlaðins veggs við hlið lestarteinanna, þakið hafði rifnað af öðrum. Tvö önnur lestarslys hafa orðið á þessum sama stað síðan 2003.
Erlent Fréttir Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Fleiri fréttir Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Sjá meira