Viðræður milli Real og LA Galaxy í fullum gangi 15. janúar 2007 13:00 Þessi mynd var tekin á æfingu Real Madrid í morgun. Þar var Beckham mættur en hann átti engin samskipti við þjálfarann Fabio Capello á meðan henni stóð. Vel fór hins vegar á með Beckham og liðsfélögum hans. MYND/AFP
Viðræður hafa staðið yfir í morgun og alla helgina á milli Real Madrid og LA Galaxy um að David Beckham fái að yfirgefa herbúðir spænska liðsins strax í þessari viku og ganga til liðs við bandaríska liðið. Beckham skrifaði sem kunnugt er undir samning við LA Galaxy í síðustu viku og var fyrirhugað að hann færi til Bandaríkjanna í sumar. Eftir að Fabio Capello, stjóri Real, tilkynnti að Beckham fengi ekki að spila aftur fyrir lið sitt hafa málin þróast í óvænta átt og virðist vera gagnkvæmur vilji beggja félaga að ganga frá nýjum samningi hið fyrsta, sem felur í sér að Beckham fari frá Real strax í þessum mánuði. “Mér skilst að lögfræðingar Beckham séu að vinna í samningi sem gerir leikmanninum kleift að fara strax til Los Angeles. LA Galaxy getur ekki greitt upphæðina sem þarf til að losa Beckham undan samningi, samkvæmt núgildandi samningi hans við Real Madrid, en verið er að reyna að finna lausn á málinu,” sagði Don Garber, einn af yfirmönnum bandarísku atvinnumannadeildarinnar í fótbolta. “Við viljum fá Beckham eins fljótt og hægt er til landsins og forráðamenn Galaxy eru að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að láta það verða að veruleika. Beckham vill einnig koma strax og það er aðalmálið,” bætti Garber við.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Spænski boltinn Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Sjá meira