Jólasveina-vísitala 17. september 2007 05:30 Nú hefur verið ákveðið að fækka jólasveinum niður í fjóra. Upphaflega voru þeir einn og átta (sama sem níu) en vegna vísitölutryggingar voru þeir komnir upp í þrettán. Með þessu á að fylgja eftir niðurskurðaraðgerðum Ríkisútvarpsins ohf. sem ganga út á að fækka Spaugstofumönnum til að geta keypt vetrarhjólbarða undir bifreið útvarpsstjóra. Til samræmis hefur verið ákveðið að taka upp svonefnda jólasveinavísitölu þannig að engin stofnun má hafa fleiri en fjóra jólasveina á sínu framfæri. Þessi niðurskurður mun koma sérstaklega hart niður á utanríkisráðuneytinu. ÞJÓÐKIRKJAN hefur áhuga á að taka þátt í átakinu og er í ráði að fækka lærisveinum um helming - eða niður í sex - frá næstu áramótum. Til að ná ásættanlegu kynjahlutfalli hefur verið ákveðið að gera Maríu Magdalenu að lærisveini, sömuleiðis verður María "hin" (ekki "móðir Jesú" og ekki "vinkona" heldur "hin") tekin í hópinn og verða þá fjórir karlmenn í bekknum og tvær stúlkur sem er mjög ásættanlegt hlutfall. Meðal þeirra lærisveina sem hverfa frá námi eru Andrés bróðir Péturs og Jakob Sebedeusson bróðir Jóhannesar Sebedeusarsonar til að koma í veg fyrir ættarklíkur. Einnig verður Júdas strikaður út. Svik hans við Frelsarann eru að vísu fyrnd en Síminn mun hafa í hyggju að stefna honum fyrir nýlegt svikamál sem er mun alvarlegra. SÖMULEIÐIS hefur verið ákveðið að fækka milljarðamæringum niður í tvo og hafa hinir grænu og vinsælu Maraþon-Bjarni og Ólafur Sony orðið fyrir valinu. Fyrirtækjum í Kauphöllinni verður fækkað niður í eitt þannig að þar verði þá eftir eitt öflugt félag til að leysa af hólmi Innherjann, Smokkfiskinn og Kolkrabbann. ÝMISLEGT fleira er á prjónunum svo sem að gera þeim sem eiga alvörupeninga skylt að notast við evrur. Örorkubætur verða þó áfram greiddar með íslenskum krónum. Jafnframt verður enska tekin upp sem þjóðtunga nema hvað fyrst um sinn mun Fjallkonan flytja sautjánda-júní-ávarp sitt á íslensku. Ennfremur hefur verið ákveðið að leyfa auðmönnum að giftast hver öðrum til að koma í veg fyrir að auðurinn dreifist á of margar hendur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þráinn Bertelsson Mest lesið Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun